Fréttir
Framkvæmdir fyrir Humarhátíð
Framkvæmdir fyrir Humarhátíð
Framkvæmdir fyrir Humarhátíð (HIE)
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

04.07.2008 Fréttir

Framkvæmdir fyrir Humarhátíð

Nú standa yfir þó nokkrar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins ásamt því að vinnuskólinn hefur unnið að því að snyrta bæinn fyrir Humarhátíð. Sundlaugarframkvæmdir ganga ágætlega. Verktakar hafa unnið að krafti í byggingunni undanfarnar vikur og það má sjá hvernig mannvirkið tekur á sig nýja og nýja mynd frá degi til dags. RARIK eru að undirbúa tengingu á heitu vatni inn í sundlaugarbyggingu og vinna hörðum höndum við að sjóða saman heitavatnslagnir undir Fiskhólnum þar sem starfmenn vélsmiðjunnar Foss sjá um suðuvinnu. Frágangur Sindravalla er að klárast starfmenn Hans Christensen eru að leggja lokahönd á frágang girðingar umhverfis völlinn ásamt því að koma niður varamannaskýlum.

Unnið er að endurbótum inni í Heppuskóla þar sem verið er að koma fyrir lyftu og lagfæra salerni og bæta aðgengi fyrir fatlaða.
Tækni- og umhverfissvið óskar öllu Hornfirðingum góðrar humarhátíðarhelgar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica