Fréttir
Sorpflokkunarherferð
Sorpflokkunarherferð
Mynd 1 af 3
1 2 3

17.02.2009 Fréttir

Stofnanir Sveitarfélagsins fara af stað í öfluga flokkunarherferð

 

Stofnanir Sveitarfélagsins Hornafjarðar breyttu fyrirkomulagi í úrgangsmála um mánaðarmótin janúar/febrúar, um er að ræða leikskólana Krakkakot og Lönguhóla, Grunnskóla Hornafjarðar ( Nesjaskóli, Heppuskóli og Hafnarskóli ) Tónskólinn, Ráðhúsið, HSSA, Íþróttahúsið og Nýheima.  Stofnanirnar flokka nú allan úrgang sem fellur til sem er einna helst bylgjupappír, dagblöð og tímarit, mjúkt plast svo sem filmuplast og plastpokar, sléttan pappír og smátt brotajárn. Stofnanir hafa nú eingöngu almennar sorptunnur líkt og heimili á Höfn sem tæmdar verða með reglubundinni sorphirðu bæjarins. Áður voru sorpgámar við hverja stofnun sem losaðir voru eftir þörfum. Þetta fyrirkomulag eflir umhverfisvitund nemenda og starfmanna sveitarfélagsins og stuðlar að bættu umhverfi í sveitarfélaginu.  Auk þess er töluverður fjárhagslegur ávinningur hlýst af þessari breytingu.  Það er mikilvægt að sveitarfélagið ríði á vaðið í þessum málum og verði fyrirmynd fyrir aðra íbúa og fyrirtæki staðarins.

Á síðasta ári söfnuðust tæp 125 tonn af flokkuðum úrgangi sem fluttur var til endurvinnslu til að setja þetta í samhengi þá samsvarar þetta  57 Nissan Navara jeppa bifreiðum.  Því má segja að íbúar og fyrirtæki í sveitarfélaginu eru liðtæk þegar kemur að flokkun úrgangs
Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica