Fréttir

18.02.2009 Fréttir

ATVINNA

 

1.  Umsjón með  vinnuskóla á Höfn og í Nesjum

Starfið felst í skipulagningu og stjórnun vinnuskóla og skólagarða.  Krafist er stúdentsprófs og reynslu í stjórnun sem og lipurð í mannlegum samskiptum, æskilegt er að umsækjandi hafi yfir að ráða þekkingu og/eða lokið námi í kennslufræðum.

 

2.  Flokksstjórn í  vinnuskóla á Höfn og í Nesjum

Starfið felst í að vinna með unglingum, aðallega í umhirðu grænna svæða sveitarfélagsins.

Umsækjendur þurfa helst að vera 20 ára eða eldri.

Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja starfa í skemmtilegu umhverfi með skemmtilegum unglingum og öðlast reynslu á sviði stjórnunar.

 

3.  Umsjón með skólagörðum

Starfið felst í því að taka á móti nemendum í yngri bekkjum Grunnskóla Hornafjarðar, leiðbeina og aðstoða nemendur við að rækta grænmeti, kartöflur og salöt.  Æskilegt er að umsækjendur séu 18 ára eða eldri.  Tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga á að vera úti í náttúrunni og vinna með börnum.

 

4.  Vinna við slátt

Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Starfið felst í slætti á opnum svæðum, einkagörðum og almennri garðyrkju. Unnið er með m.a. sláttubíl, sláttuvélar og vélorf.
Hentar vel fyrir þá sem vilja vinna úti og í góðum félagsskap.


Umsóknareyðublöð

Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarfélagsins og á heimsíðu Sveitarfélagsins

einnig má skila inn rafrænt á netfangið haukuri@hornafjordur.is. Skila ber umsóknum fyrir 15. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs í síma 470 8003

 

Höfn 17. febrúar 2009

Tækni- og umhverfissvið

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica