Fréttir
Steinteppi
Steinteppi
Blágrýti og gabbró
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

26.02.2009 Fréttir

Lokafrágangur gólfa í nýju sundlauginni við Heppuskóla

Verið er að leggja lokahönd á gólflögn í nýju sundlauginni við Heppuskóla.  Epoxi gólf er á blautrými og gangi að búningsherbergjum en steinteppi er í afgreiðslu.  Steinefni sem notuð eru í steinteppi eru Hornfirsk og koma frá Horni um er að ræða perlumöl sem blönduð er epoxi efni og lagt niður með múrspaða.  Perlumölin er samblanda blágrýti og gabbró, blágrýtið er ríkjandi og því er steinteppið dökkt. 

Jakob sem leggur gólfefnið segir perlumölina frá Horni frábrugðna þeim steinteppum sem hann hefur lagt.  Efnið dregur ekki eins mikið í sig lakk og skríður meira.  Jakob sagðist eiga fund með ferðaskrifsstofu í vikunni og ætlar að mæla með því að efni frá Horni verði notað á gólf fyrirtækisins.  Af þessu má ætla að perlumöl úr Sveitarfélaginu Hornafirði eigi eftir að dreifi sér víða.

HIE

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica