Fréttir
Guðjón og Þórhallur að vinna í þakinu
Endurvinnslubraggi
Guðjón og Þórhallur að vinna í þakinu. Mynd: HIE

03.03.2009 Fréttir

Stækkun á endurvinnslubragga.

Verið er að leggja lokahönd á stækkun á aðstöðu móttöku á flokkuðum úrgangi.

Starfmenn þjónustustöðvar Hornafjarðar eru að vinna að stækkun á móttökuhúsi fyrir flokkaðan úrgang.  Gert er ráð fyrir aukningu á móttöku flokkaðs úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði með breyttu fyrirkomulagi í sorphirðu í sveitum.  Einnig er ráðgert að taka á móti pressugám frá Nettó á Höfn en þar fellur til mikið magn af flokkanlegum úrgangi svo sem bylgjupappa og mjúku umbúðarplasti.  Ennfremur er búið að fjölga grenndargámastöðvum í þéttbýlinu Höfn.  Með þessu breytta fyrirkomulagi í sorphirðu var nauðsynlegt að bæta aðstöðu fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi.

 

Sveitarfélagið stefnir að því að vera fremst meðal jafningja í umhverfismálum enda á það vel við með tilkomu stærsta þjóðgarðs Evrópu, Vatnajökulsþjóðgarð, og þá uppbyggingu sem orðið hefur í móttöku á ferðamönnum í Sveitarfélaginu Hornafirði.

 

HIE

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica