Fréttir
Gömlu stuararnir
Hluti af gamla burdarvirkinu
Mynd: HIE
Mynd 2 af 3
1 2 3

06.03.2009 Fréttir

Endurnýjun Vogabryggju.

Vogabryggja endurnýjuð.

Olgeir Jóhannesson er nú að leggja lokahönd á endurbætur Vogabryggju.  Bryggjan er staðsett beint fyrir framan hafnarvogin á Höfn í Hornafirði.  Bryggjan hefur um langt skeið þjónað sem viðlegukantur fyrir Björn lóðs sem er lóðsbátur Hafnar. 

Bryggjan var byggð rétt eftir 1960 og allt fram til 1975 var landað fiski á bryggjunni.  En eftir að ný bryggja við Miklagarð ( 1975 ) var byggð þá breyttist notkun Vogabryggju töluvert.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum héngu staurarni uppi á lyginni einni saman og tímabært að endurnýja þá.

Olgeir segist klára verkið í næstu viku.  Honum til halds og traust í verkinu hefur verið Guðmundur Guðlaugsson sonur eins besta bryggjusmiðs landsins, Guðlaugs Einarssonar frá Fáskrúðsfirði.  En Guðlaugur sá um að reka niður nýtt stálþil við Álaugareyjarbryggju á Höfn sumarið 2008.

 

HIE   

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica