Góður árangur í úrgangsmálum
Fyrstu þrjá mánuði ársins sendi Sveitarfélagið Hornafjörður tíu sinnum meiri úrgang til endurvinnslu en fyrstu þrjá mánuði ársins 2008.
Um skeið hefur verið lögð áhersla á flokkun sorps og endurvinnslu úrgangs í sveitarfélaginu. Starfið skilar sýnilegum árangri sem bæði bætir umhverfið og eykur líftíma sorpurðunarstaðarins í Lóni. Fyrstu þrjá mánuði ársins sendi Sveitarfélagið Hornafjörður tíu sinnum meiri úrgang til endurvinnslu en fyrstu þrjá mánuði ársins 2008. Rúmlega 56 tonn fóru til endurvinnslu og var um að ræða baggaplast, sléttan pappír, bylgjupappír, dagblöð og tímarit og mjúkt plast. Þessi árangur verður að teljast góður og bendir til þess að íbúar í sveitarfélaginu eru fljótir að bregðast við og aðlaga sig að breyttu fyrirkomulagi.
Í vor voru sex grenndarstöðvar settar upp í sveitum og sú starfsemi farið ágætlega af stað en þær samanstanda af níu úrgangsflokkum. Þær eru staðsettar við Jökulsá í Lóni, Nesjahverfi, Holt, Smyrlabjargará, Hrollaugsstaði og Breiðabólstaðabæi. Stöðvarnar eru misstórar og má benda á að gámar undir lífrænan úrgang eru á fjórum stöðum, við Hrollaugsstaði, milli Hólms og Lambleiksstaða, við Nesjahverfi og við Jökulsá í Lóni.
Einnig eru gámar sem taka timbur, dekk og stórt brotajárn staðsettir í dreifbýlinu annan hvern mánuð. Gámur verður í Suðursveit og Lóni frá 1. Júní – 1. Júlí en í Nesjum og Mýrum frá 1. Júlí – 1 ágúst. Gámarnir eru tvískiptir og fer brotajárn í annað hólfi en timbur og dekk í hitt. Áfram er bændum boðið upp á að heyrúlluplast sé sótt heim á bæi. Næsta ferð verður farin í júní. Að lokum verður gerð tilraun í haust með að safna spilliefnum af bæjum en bændur eiga von á bréfi um það efni á næstunni.
Borið hefur á því að blönduðum úrgangi sé fleygt í flokkunarstöðvarnar og hálmur settur í gám sem ætlaður er fyrir lífrænan úrgang. Það skal tekið sérstaklega fram að gámur undir lífrænan úrgang er eingöngu ætlaður fyrir dauðar skepnur og matarafganga. Haldnir verða kynningarfundir um miðjan júní í sveitum og þá verður farið nánar yfir hvernig ber að flokka í grenndargámastöðvarnar.
Sérstök athygli er vakin á því að sveitarfélagið flytur ekki úrgang frá fyrirtækjum né sumarhúsaeigendum en bíður þessum aðilum upp á aðgengi að flokkunarstöðvum og gámaportinu á Höfn. Sveitarfélagið bendir rekstraraðilum og sumarhúsaeigendum á að fyrirtækið Funi ehf. tekur að sér flutning á úrgangi og þar er einnig hægt að leigja ílát undir úrgang.
Allir þeir sem óska frekari upplýsinga um málið er bent á að senda fyrirspurn á netfangið haukuri@hornafjordur.is eða í símanúmerið 470-8000. Safnað verður saman algengum fyrirspurnum og þeim svarað á heimasíðu sveitarfélagsins.
Umhverfismál er stór þáttur í lífi íbúa og eru sorpmál mikilvægur hluti þessa málaflokks. Það er stefna sveitarfélagsins að vera fremst meðal jafningja í umhverfismálum en til þess að svo megi verða þurfa allir að leggjast árarnar. Stöndum vörð um sameiginlega hagsmuni íbúa og hugsum áður en við hendum.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs





Skrifa athugasemd