Fréttir
Djúpt hugsi á skökkviliðsnámskeiði
Djúpt hugsi á skökkviliðsnámskeiði

22.09.2003 Fréttir

Slökkviliðsmenn á skólabekk

Slökkviliðsmenn á Hornafirði hafa um helgina sótt námskeið sem Brunamálaskólinn stendur fyrir. Kennsla fór fram í Áhaldahúsi bæjarins. Brunamálaskólinn stendur fyrir alhliða kennslu fyrir slökkviliðsmenn og eru námskeið haldin á hverju ári hjá öllum slökkviliðum á landinu. Á námskeiðinu var m.a. farið yfir og kennd grunnatriði í slökkvi- og björgunarstarfi, hvernig unnið er með björgunarklippur þar sem orðið hafa umferðarslys og meðhöndlun eiturefna.

Kennarar á námskeiðinu voru Elísabet Pálmadóttir skólastjóri Brunamálaskólans, Þórður Bogason og Oddur Hallgrímsson sem báðir eru í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og hafa kennt við Brunamálaskólann í mörg ár.
Elísabet sagði að mæting á námskeiðið hefði verið góð og strákarnir áhugasamir og bætti við ,, það fara mjög góðar sögur af slökkviliðinu hér og öll umræða um það er mjög jákvæð”. Slökkvilið Hornafjarðar er skipað 20 slökkviliðsmönnum og tveim slökkviliðsstjórum þeim Steinþóri Hafsteinssyni og Jóni St. Friðrikssyni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica