Breytingar á sorpgjöldum fyrirtækja og lögbýla í sveitarfélaginu Hornafirði.
Breytingar hafa verið gerðar á sorpgjöldum til fyrirtækja og lögbýla. Megin breytingar eru fólgnar gegnsæi í gjaldtöku sem leiða á af sér aukna endurvinnslu úrgangs. Fyrirtæki greiða þar að leiðandi fyrir magn en eru ekki sett í fyrirfram ákveðna flokka eins og áður var. Þannig geta fyrirtæki haft bein áhrif á þennan lið í rekstri sínum með því að skila inn endurvinnanlegum úrgangi sem er án gjaldtöku, fyriræki greiða hinsvegar fyrir blandaðan úrgang.
Gjaldtaka fyrir magn er með tvennskonar hætti og fara fram á þriggja mánaðarfresti. Fyrirtæki sem eru með gáma greiða fyrir hvert urðað kg en fyrirtæki sem eru með minni ílát svo sem tunnur eða 660 L kör greiða fyrir m³ samkvæmt gjaldskrá. Þau fyrirtæki sem eru með ílát frá Sveitarfélaginu verður gefinn kostur að kaupa þau á heildsöluverði. Fyrirtæki greiða einnig fyrir óflokkaðan úrgang sem komið er með í móttökustöð gámaports við Áhaldahús samkvæmt gjaldskrá.
Haldnir verða kynningarfundir á breyttu fyrirkomulagi næstu daga og tvær vikur. Hægt verður að hafa samband við Hauk Inga Einarsson framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs í síma 470-8003 / 895-9946 í viku 6 ( 8. feb. – 12. feb. ) kl 8:30 – 9:30. Í sjöundu viku ( 15. feb. – 19. feb. ) verður rekstraraðilum fyrirtækja boðið að koma á skrifsstofu ráðhússins á milli kl 9:00 – 10:00 og fá nánari útskýringar á gjaldskránni sé þess óskað. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið haukuri@hornafjordur.is sem verður svarað eins fljótt og auðið er.
Hægt er að kynna sér breytta gjaldskrá hér.
- Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar





Skrifa athugasemd