Vogarhús endurnýjað
Þingvað endurnýjar vogarhúsið
Fyrirtækið Þingvað vinnur nú að endurnýjun vogarhúss. Um er að ræða verulega yfirhalningu á húsinu en það verður allt endurnýjað inni, fengnar nýjar innréttingar, veggir endurnýjaðir, rakavarnarlagi komið fyrir og hitalagnir settar í gólf. Verið er að undirbúa utanhússviðhald þar sem skipt verður út klæðningu og göflum breytt. Húsið verður fært í sambærilegt útlit og Pakkhúsið en þetta er meðal annars liður í að fá heildarmynd á Hafnarvík – Heppu svæðið. Gláma – Kím sá um útlisthönnun og Verkfræðiþjónustan um breytingar innandyra. Tæknideild Hornafjarðar stýrir verkinu.





Skrifa athugasemd