Atvinna í sundlaug Hafnar
Framtíðarstarf - sumarstörf
Framtíðarstarf
Vantar starfsmann í stöðu sundlaugarvarðar 20 ára aldurstakmark.
Viðkomandi þarf að taka próf í skyndihjálp og björgun og hæfnispróf sundsstaða.
Sumarstörf
Vantar starfsfólk í afleysingar, fyrir sundlaugarvörð 20. ára aldurstakmark og baðverði 18.ára aldurstakmark.
Umsækjendur þurfa helst að hafa skyndihjálparpróf.
Um er að ræða vaktarvinnu.
Launakjör samkvæmt samningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarfélagsins Hafnarbraut 27 og á heimasíðu sveitarfélagsins einnig má skila inn umsókn rafrænt á netfangið haukur@hornafjordur.is.
Skila ber umsóknum fyrir 16. mars nk.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Haukur Helgi Þorvaldsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 470 8000.





Skrifa athugasemd