Þjóð gegn þunglyndi
Fræðslu og félagssvið Hornafjarðar í samvinnu við landlæknisembættið stóð fyrir námskeiði s.l. mánudag á Hótel Höfn. Yfirskrift námskeiðsins var ?Þjóð gegn þunglyndi? Það voru m.a. starfsmenn skóla, heilbrigðisstofnunar, lögreglu og fl. sem sóttu námskeiðið. Alls 33 þátttakendur. Þátttakendur létu vel af námskeiðinu og var almenn ánægja með hvernig til tókst. Námskeiðinu stýrðu Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur, Óttar Guðmundsson, geðlæknir og Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur.
Birgir Þ. Kjartansson, félagsmálastjóri Hornafjarðar sagði að námskeiðið hefði tekist í alla staði mjög vel og mikilli og góðri fræðslu hefði verið komið til skila. Við stefnum svo að því að halda námskeið fyrir foreldra um þunglyndi meðal barna og unglinga eftir áramót og fá þá í lið með okkur sérfræðinga á því sviði sagði Birgir að lokum.





Skrifa athugasemd