Fjárhagsáætlun Hornafjarðar fyrir 2011 ásamt þriggja ára áætlun
Fréttatilkynning vegna fjárhagsáætlunar Hornafjarðar fyrir árið 2011 ásamt þriggja ára áætlun 2012-2014
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 og gerð þriggja ára áætlunar fyrir árin 2012 – 2014 var unnið út frá drögum að reglum um fjármál sveitarfélaga. Reglurnar eru tvær, annars vegar skuldaregla sem segir að skuldir sveitarfélaga megi ekki vera hærri en 150% af tekjum þeirra og hins vegar að sveitarfélögum er gert að skila afgangi á hverju þriggja ára tímabili. Samkvæmt framlagðri tillögu mun Sveitarfélagið Hornafjörður uppfylla bæði þessi skilyrði í reglum um fjármál sveitarfélaga
|
Helstu niðurstöður ársins 2011 eru eftirfarandi
Helstu niðurstöður áætlunarinnar árin 2011-2014 eru eftirfarandi. Tölurnar eru fyrir A og B hluta |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Álagningarreglur og gjaldskrár verða óbreyttar á milli ára með þeim undantekningum að gjaldskrár vegna fæðis í leik- og grunnskólum hækka og sorpurðunargjald hækkar einnig. Gjaldskrár vegna fæðiskostnaðar í leik- og grunnskóla hækka vegna hærra hráefnisverðs. Tillagan gerir ráð fyrir 5% hækkun á fæði í leikskólum og hækkun úr 250 krónum í 260 krónum fyrir hádegismat í Grunnskóla Hornafjarðar. Jafnframt hækkar gjald fyrir fæði í lengdri viðveru þannig að það standi undir innkaupum á hráefni. Með þessu hækka greiðslur foreldra vegna fæðis barna þeirra í leikskólum um rúmlega fjögur þúsund krónur á ári og í grunnskólum um tæplega tvö þúsund krónur á ári. Sorpurðunargjald hækkar um úr 10.000 krónum í 14.000 fyrir heila tunna en íbúum verður jafnframt boðið upp á að fá hálfa tunnu og greiða urðunargjald upp á 5.000 krónur. Þetta á að virka sem hvatning til íbúa um frekari flokkun sorps.
Helstu breytingar á milli endurskoðaðrar áætlunar 2010 og áætlunar 2011: · Skatttekjur -3,6% · Félagsþjónusta breytist 0,2% · Fræðslu- og uppeldismál -3,4% · Menningarmál -2,7% · Æskulýðs- og íþróttamál 0,1% · Sameiginlegur kostnaður lækka -6,2%
Fjárhagsáætlun verður kynnt í hádeginu þann 28. desember á Kaffihorninu og tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn þann 13. janúar nk.. Á milli umræðna verður meðal annars farið yfir forgangsröðun framkvæmda og viðhalds fyrir sveitarfélagið.
Sjá nánar "hér" |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||




Skrifa athugasemd