List og verkgreinar á Hornafirði
Í desember 2010 veitti bæjarstjórn Hornafjarðar tveimur miljónum króna til að efla handverk og hönnun á Hornafirði. Jafnframt ákvað bæjarstjórn að útfæra hugmyndina í samstarfi Framhaldsskólans, Grunnskóla Hornafjarðar og handverks- og hönnunarfólks. Þann 4. janúar var fundur bæjarstjóra, framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs, skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar, skólameistara FAS og fulltrúa frá menningarmiðstöð Hornafjarðar þar sem fram kom ánægja með fjárveitinguna. Fundarmenn voru sammála um að mikilvægt væri að taka ákveðinn skref í uppbyggingu list- og verkgreina í nánustu framtíð. Vaxandi hluti af skólastarfi og atvinnulífi byggði á list- og verkgreinum. Brýnt væri að hefjast þegar handa við að móta framtíðarstefnu í þessum málum.
Í kjölfarið á þessum fundi tók bæjarráð Hornafjarðar málið fyrir á 529. fundi sínum þann 17. janúar 2011 og fól bæjarstjóra að koma saman hóp til að kanna þörf og áhuga um uppbyggingu aðstöðu og húsnæðis fyrir list- og verkgreinar. Þeir aðilar sem völdust í hópinn eru Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari FAS, Ragnhildur Jónsdóttir frá Þekkingarneti Austurlands, Björg Erlingsdóttir og Guðlaug Pétursdóttur frá Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Eva Eiríksdóttir og Eiríkur Hansson frá Grunnskóla Hornafjarðar og Guðrún Ingólfsdóttir frumkvöðull. Hópurinn hóf störf 3. febrúar 2011 og fundaði fimm sinnum í febrúar og marsmánuði. Auk þeirra fór Tinna Arnardóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði með hópnum í hringferð um landið dagana 21. og 22. mars og tók þátt í gerð þessarar samantektar.
Markmið greinargerðarinnar er að gera grein fyrir störfum hópsins, fara yfir stöðu list- og verkgreina á Hornafirði og meta þörf á uppbyggingu náms og aðstöðu í framtíðinni, greina frá dæmum um velheppnaða uppbyggingu í list- og verkgreinum víða um land og leggja fram tillögur að markmiðum til 2ja ára, 5 ára og 10 ára í þessum málum.
Hópurinn telur mikilvægt að á þessu stigi verði málið kynnt fyrir hlutaðeigandi aðilum og íbúum sveitarfélagsins. Til að raungera þau markmið sem sett eru fram í lok greinargerðarinnar telur hópurinn nauðsynlegt að ráðinn verði sérstakur verkefnisstjóri til að ýta verkefninu úr vör. Hópurinn telur jafnframt mikilvægt að áframhaldandi vinna byggi á góðri samvinnu þeirra sem tekið hafa þátt í verkefninu hingað til ásamt öðrum áhugasömum aðilum.
Skýrslu hópsins má sjá hér (Word)





Skrifa athugasemd