Fréttir
17. júní 2009
Frá 17. júní hátíðarhöldum (úr myndasafni) 

20.05.2011 Fréttir

Fjölskyldustefna Hornafjarðar

Í dag kom Fjölskyldustefna Hornfjarðar út í fyrsta sinn en hún verður gefin út auk íslensku á ensku og pólsku.

Stefnan er fyrst og fremst gefin út á vefnum og verður aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Tilgangurinn með gerð og útgáfu stefnunnar er sá að gera starf þess í málefnum fjölskyldunnar markvissara og auka ánægju íbúa með bættri þjónustu. Það er ósk sveitarfélagsins að gera fjölskylduna sýnilegri og gera fjölskyldur meðvitaðar um ábyrgðina sem þær bera á sínum fjölskyldumeðlimum og skapa aðstæður til aukinnar fjölskyldusamveru í sveitarfélaginu.

Fjölskyldustefna Hornafjarðar er hugsuð sem verkfæri fyrir sveitarstjórn til að móta stefnu í málefnum fjölskyldunnar reglulega og setja af stað verkefni hvort sem litið er til lengri eða skemmri tíma. Stefnan var mótuð og unnin með þátttöku allra framboða í sveitarstjórn en í stýrihóp vegna gerðar stefnunnar voru Matthildur Ásmundardóttur, Elín Magnúsdóttir og Gauti Árnason en starfsmaður hópsins var Jón Kr. Rögnvaldsson, félagsmálastjóri. Félagsmálaráð Hornafjarðar mun síðan fylgja stefnunni eftir þannig að tryggt sé að unnið verði með markmið hennar eftir því sem hægt er.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica