Fréttir
GR_6-6-2011-15-23-58
GR_6-6-2011-15-23-58
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson og Ragnheiði Hrafnkelsdóttur ásamt börnum.

06.06.2011 Fréttir

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson ráðinn sem umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Nú á vordögum tók Rúnar við af Hákoni Valdimarssyni sem byggingarfulltrúi sveitafélagsins en hann mun einnig hafa umsjón með umhverfis- og skipulagsmálum.

Rúnar er fæddur og uppalinn á Djúpavogi og er mörgum Hornfirðingum kunnugur þar sem hann hefur stundað sjómennsku á bátum frá Hornafirði og er giftur Ragnheiði Hrafnkelsdóttur sem er Hornfirðingur í húð og hár.  Ragnheiður er markaðsfræðingur og  klæðskeri að mennt og hefur meðal annars séð um hönnun og gerð búninga fyrir Legoland. Rúnar og Ragnheiður eiga þrjá stráka, Sævar Rafn sjö ára, Sigurð tveggja ára og Þór fæddan í janúar 2011.

Síðustu árin hafa þau Rúnar og Ragnheiður verið búsett í Danmörku þar sem þau stunduðu nám við viðskipta og tækniháskólann VIA. Þaðan útskrifaðist Rúnar sem byggingarfræðingur og hefur lokið löggildingu í mannvirkjahönnum hér á landi. Áður en þau hjónin fluttust til Danmerkur voru þau búsett í Reykjavík. Þar starfaði Rúnar sem húsasmiður, lengst af hjá ÍAV og Ragnheiður rak klæðskeraverkstæði.

Að sögn Rúnars eru þau hjónin mjög ánægð með að vera komin til Hornafjarðar enda búið að vera jákvæð uppbygging í sveitafélaginu síðustu ár og margt spennandi framundan.

Við bjóðum Rúnar velkominn til starfa um leið og við þökkum Hákoni Valdimarssyni vel unnin störf.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica