Fréttir
Heppuskóli
Heppuskóli
Framkvæmdir við Heppuskóla @ÞI

16.06.2011 Fréttir

Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að viðhaldi Heppuskóla.

Skóla-, íþrótta-, og tómstundanefnd leiddi hönnunarvinnu í samstarfi við ASK arkitekta er snýr að heildar viðhaldi Heppuskóla.  Hönnunin tekur bæði á viðhaldi utan húss og endurbótum innan veggja skólans. 

Fyrsti áfangi sem nú er unnið að snýr að endurbótum á utanhússklæðningu skólans.  Verkið felst í að rífa núverandi múrning niður og setja upp flísaklæðingu í bland við timburklæðingu.  Klæðningin samanstendur af 30x60 cm flísum sem eru ljósar og rauðbrúnar.  Einnig verða gluggar endurnýjaðir og inngangur skólans endurbættur.  Áfangar er snúa að innanhússbreytingum fara ekki fram í þessari lotu.  Með þessari framkvæmd er tekið eitt skref til viðbótar í viðhaldi á skólahúsnæði sveitarfélagsins en á síðustu þrem árum er búið að fara í endurbæta á Hafnarskóla, Sindrabæ og leikskólanum Lönguhólum ásamt hefðbundnu viðhaldi í Hrollaugsstaðaskóla og leikskólans Krakkakoti.   

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica