Nýjar og endurskoðaðar reglur á stjórnsýsluvefinn
Reglur um : Leikskólabörn í skólabílum, stuðningur við foreldra í dreifbýli vegna aksturs með börn í leikskóla og endurskoðaðar reglur um leikskólana á Hornafirði.
Settar hafa verið á stjórnsýsluvefinn eftirtaldar reglur:
- Reglur um leikskólabörn í skólabílum - nýjar reglur
Reglunum er ætlað að skýra rétt foreldra til að nota skólabíla fyrir leikskólabörn og til að tryggja sem best örygga barnanna.
- Reglur um stuðning við foreldra í dreifbýli
Reglur þessar koma í stað vinnureglna sem farið hefur verið eftir en ekki hlotið staðfestingu í bæjarráði. Þeim er ætlað að hvetja foreldra til að nýta leikskólavist fyrir börnin sín og um leið að draga úr þeim mismun sem búseta langt frá þjónustu getur haft í för með sér.
- Reglur um leikskólana á Hornafirði - endurskoðaðar reglur




Skrifa athugasemd