Fréttir
Heppuskoli-fors
Heppuskoli-fors

01.03.2012 Fréttir

ATVINNA - FRÆÐSLUSTJÓRI

Laust er til umsóknar starf fræðslustjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Fræðslustjóri er yfirmaður á sviði skóla-, æskulýðs- og tómstundamála.  Undir starfið heyra leikskólar, grunnskólar, tónskóli, íþróttamannvirki og félagsmiðstöð.

 

Helstu verkefni:

 

·         Ráðgjöf og stuðningur við skólastarf, þar á meðal kennsluráðgjöf.

·         Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur skóla í ýmsum þáttum sem snúa að starfi skólanna svo sem í lagalegum-, faglegum – og rekstrarlegum málum fyrir leik- grunn- og tónskóla.

·         Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur íþróttamannvirkja og tómstundamála.

·         Skipulag og eftirlit með sérfræðiþjónustu við skóla.

·         Áætlanagerð í skóla-, æskulýðs- og íþróttamálum.

·         Eftirlit með skólastarfi í sveitarfélaginu.

·         Þverfagleg vinna að málefnum skólabarna ásamt starfsmönnum félagsþjónustu sveitarfélagsins.

·         Stefnumótun í málaflokkum sem falla undir starfssvið fræðslustjóra.

·         Samskipti við aðila utan sveitarfélagsins í viðkomandi málaflokkum.

·         Starfsmaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.

 

Hæfniskröfur

·         Háskólapróf sem nýtist í starfi.

·         Góð þekking á sviði leik- og grunnskóla.

·         Reynsla af störfum innan skólakerfisins nauðsynleg.

·         Skipulagshæfileikar, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum.

·         Góð íslenskukunnátta.

·         Reynsla af stjórnun æskileg.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, sími 470-8000, netfang hjaltivi@hornafjordur.is,

Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs, sími 470-8002, netfang stefan@hornafjordur.is.   

 

Umsóknarfrestur er til 19. mars 2012 og skal stíla umsókn á Sveitarfélagið Hornafjörð,  Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði, merkt fræðslustjóri.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica