Breyting á aðalskipulagi virkjun í Birnudal

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að skilgreina stað til iðnaðar vegna virkjunar í Birnudal í sveitarfélaginu. 

Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum að Hafnarbraut 27 frá og með fimmtudeginum 5. október nk. til mánudagsins 20. nóvember 2017 og hjá Skipulagsstofnun að Borgartúni 7b 105 Reykjavík.

Breytingartillaga Birnudal

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til mánudagsins 20. nóvember 2017. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27.

 Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri