Útboð

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Vöruhúsið, Hafnarbraut 30 miðstöð skapandi greina – febrúar 2019“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.

Hér er um almennt útboð að ræða og lítur þeim reglum sem um það gilda.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Fyrirhugaðar eru heildar endurbætur innandyra í Vöruhúsinu sem verður gert í áföngum. Reiknað er með 4 áföngum. 1. áfanga er lokið og vinna við 2. áfanga er að klárast.

Þetta útboð er 3. áfangi og snýr aðallega að endurbótum á miðhæð hússins (1. hæð).

Svæðið sem um ræðir innandyra er í dag nýtt fyrir myndlist og textíl vinnslu, smíðastofu og smíðakennslu, o.fl.

Helstu verkþættir:

Flest allir innveggir og niðurhengd loft ásamt öllum lögnum er í þeim er, gólfefnum, ljósum og
öðrum lögnum í loftum er rifið og fargað samkvæmt rifaplani. Þá er einnig sögun/brot á
burðarvirki vegna nýrra lagnaleiða sem og vegna lyftuganga á milli hæða.
Allt innandyra verður svo endurinnréttað á þessu svæði í húsinu samkvæmt viðeigandi teikningum/verklýsingum hönnuða.
Nýir léttir veggir, ný lofta og gólfefni samkvæmt teikningum. Nýjar lagnir þ.e. fráveita, hita og neysluvatn, loftræstilagnir og raflagnir. Viðgerðir/endurmálun. Ný anddyri full kláruð. Formuð lyftugöng innandyra fyrir nýja hjólastólalyftu. Nettó fermetrar innanhúss eru ca. 475,1m2 og brúttó ca. 557,1m2. Útboðið innifelur fullnaðarfrágang á öllum verkþáttum útboðssins.

Útboðsgögn má nálgast á usb. lykli á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 Höfn frá og með miðvikudeginum 13. mars 2019, eftir klukkan 13:00 gegn 3.000 kr. greiðslu.

Einnig er hægt að fá útboðsgögnin send án endurgjalds með því að senda tölvupóst á bjorni@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Vöruhúsið, Hafnarbraut 30 miðstöð skapandi greina – febrúar 2019“. Þá verður sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin rafrænt. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Vöruhús gögn“.

Útboðsgögn

  • Útboðslýsing
  • Verklýsingar
  • Teikningar hönnuða
  • Magnskrár og tilboðsblað

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en Þriðjudaginn 2. apríl 2019 kl. 14:00. er þau verða opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir: Björn Imsland, bjorni@hornafjordur.is sími 470-8014 eða 894-8413 og Gunnlaugur Róbertsson gunnlaugur@hornafjordur.is sími 470-8003.