Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 80

80. fundur

Fundur haldinn      í ráðstefnusal Nýheima, miðvikudaginn 22. desember 2004, kl. 13:30 í Ráðhúsi.

Mætt voru:            Elín Magnúsdóttir, forseti, Einar Karlsson, Björn Emil Traustason, Björk Pálsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir. Einnig Albert Eymundsson,  Hjalti Þór Vignisson Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.

Gengið var til dagskrár.

1.      Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 271. fundur 18. nóvember 2004.

·        Byggingar- og skipulagsnefnd, 56. fundur, 11. nóvember 2004.

·        Félagsmálaráð Hornafjarðar, 118. fundur, 9. nóvember 2004.

·        Æskulýðs og tómstundaráð, 63. fundur, 25. október 2004.

·        Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 46. fundur, 8. nóvember 2004.

Björn spurði um jarðhitaleit í sveitarfélaginu.  Þá kallaði hann eftir upplýsingum um málefni Ratsjárstofnunnar.

Kristín gerði umgengni á lóðum í sveitarfélaginu að umtalsefni.  Þá spurðist hún fyrir um vinnu sem lýtur að skilgreiningu á eignarhaldi á íþróttamannvirkjum og félagsheimilum í sveitarfélaginu líður.

Bæjarstjóri upplýsti að ákveðið hafi verið að bíða eftir lokaskýrslu um jarðhitaleit í sveitarfélaginu áður en ákvörðun um næstu skref yrði tekin.  Þá gerði bæjarstjóri grein fyrir bókun bæjarráðs um málefni Ratsjárstofnunar þar sem lýst var yfir áhyggjum af þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru og afleiðingum þess fyrir einstaklinga og sveitarfélagið.  Bæjarstjóri upplýsti að óskað hefði verið eftir fundi með stjórnendum stofnunarinnar og utanríkisráðherra um málið.  Bæjarstjóri upplýsti að haft hafi verið samband við nokkra aðila um að þeir bættu umgengni á lóðum og að ýmsir hefðu brugðist við en ekki allir.  Þá upplýsti bæjarstjóri um að vinna væri í fullum í gangi við að skilgreininga eignarhald á íþróttamannvirkjum og félagsheimilum.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 272. fundur 25. nóvember 2004.

·        Heilbrigðis- og öldrunarráð, 55. fundur, 15. nóvember 2004.

·        Stjórn gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs, 23. fundur, 15. nóvember 2004.

·        Skólanefnd Hornafjarðar, 65. fundur, 17. nóvember 2004.

Reynir spurðist fyrir um framkvæmdir á vegi við Dynjanda

Björk spurði um fjárhagsstöðu HSSA.  Þá óskaði hún eftir upplýsingum um sorpmál. 

Bæjarstjóri upplýsti að Skipulagsstofnun hafi sent bréf til sveitarfélagsins um nýjar hugmyndir að veg við Dynjanda.  Breytingar frá fyrri tillögu vegagerðarinnar eru ekki miklar en bæjarstjóri taldi að við mótun nýju tillagnanna væri umferðaröryggi að sumu leyti fórnað fyrir umhverfisvernd.  Þá gerði bæjarstjóri grein fyrir samningum við ráðuneytið um HSSA.  Niðurstaðan í umræðum við ráðuneytið leiðir til þess að HSSA verður rekið með 3 miljóna króna halla árið 2004.  Bæjarstjóri upplýsti að vinna væri í gangi hjá bæjarfélaginu um sorpmál.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 273. fundur 2. desember 2004.

·        Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 14. fundur 23. nóvember 2004.

·        Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 63. fundur 24. nóvember 2004.

·        Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 64. fundur 22. nóvember 2004.

·        Heilbrigðisnefnd Austurlands 51. fundur 24. nóvember 2004.

·        Stjórn Sambands íslenskrar sveitarfélaga 719. fundur 19. nóvember 2004

Kristín gerði málþing um kasa 12. nóvember s.l. að umtalsefni.  Hún lýsti yfir ánægju með málþingið og þær margvíslegu hugmyndir sem komu fram á þinginu.  Hún lagði áherslu á að mikilvægt sé að fylgja verkefninu eftir og taldi að það væri góð leið til að efla byggðina og atvinnulífið á svæðinu.  Þá ræddi Kristín um forvarnir og lagði áherslu á að þeim málum væri vel sinnt.

Einar spurðist fyrir um hvort björgunarskip kæmi á staðinn eða ekki.  Þá spurði hann um ósk Litlahorns ehf. um viðlegukant á Austurfjörum.

Bæjarstjóri tók undir orð Kristínar um málþing um klasa.  Þá upplýsti hann að málefni björgunarskips væri á hendi björgunarfélagsins.  Björgunarfélagið hafi leitað til hafnarstjórnar um hvernig sveitarfélagið gæti tekið þátt í kostnaði við rekstur slíks skips.  Bæjarstjóri upplýsti að hann hefði ekki nýjar fréttir um málefni Litlahorns. 

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 274. fundur 10. desember 2004.

·        Félagsmálaráð Hornafjarðar 119. fundur 30. nóvember 2004.

·        Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 60. fundur 19. nóvember og 61. fundur 30. nóvember2004.

·        Menningarmálanefnd Hornafjarðar 62. fundur 1. desember 2004.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 275. fundur 16. desember 2004.

·        Almannavarnanefnd Hornafjarðar 27. fundur 7.  desember 2004.

·        Hafnarstjórn 64. fundur 13. desember 2004

·        Menningarmálanefnd 61. fundur 10. nóvember 2004 og 63. fundur 8. desember 2004.

·        Skólanefnd  66. fundur 8. desember 2004.

·        Umhverfisnefnd 47. fundur 13. desember 2004.

Björn spurðist fyrir um málefni NorðurÍss.

Kristín tók undir bókun bæjarráðs um fyrirhugaðar breytingar hjá Ratsjárstofnun þar sem lýst var yfir áhyggjum vegna breytinga.  Hún vill að Ratsjárstofnun verði krafin skýringa um af hverju verið sé að leggja niður störf á landsbyggðinni og flytja þau á suðvestur hornið, sérstaklega í ljósi þeirrar fjarskiptatækni sem fyrir hendi er.  Þá hvatti Kristín bæjarfulltrúa að gæta hagsmuna sveitarfélagsins og hafa samband við ráðherra og aðra sem vald hafa í málinu.

Bæjarstjóri fór yfir málefni NorðurÍss og upplýsti að á hluthafafundi í félaginu hafi verið ákveðið að auka hlutafé í félaginu.  Þá upplýsti hann að aðilar bæði innan og utan sveitarfélagsins hafi nýlega keypt hlutafé.  Bæjarstjóri gerði grein fyrir að bæjarráð hafi á 276. fundi sínum, dags. 22. desember ákveðið fyrir sitt leyti að bæjarfélagið nýtti sér forkaupsrétt á hlutabréfum í félaginu.  Þá gerði hann stuðning sveitarfélagsins að umtalsefni og taldi að með því að kaupa hlutafé væri ekki verið að skekkja samkeppnistöðu gagnvart öðrum fyrirtækjum í sveitarfélaginu.  Bæjarstjóri lagði áherslu á að kaupin væri áhættusöm en gerði grein fyrir að rekstrarhorfur fyrirtækisins væru bjartari núna en oftast áður

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar, 78. fundur, 18. nóvember 2004, ósamþykkt.  Fundargerð samþykkt með 6 atkvæðum.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 79. fundur, 5. maí   2004, fundargerð áður samþykkt.

2.      Fjárhagsáætlun 2005 – 2. umræða

Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og lagði fram ítarlega greinagerð sem fylgiblað með fundargerðinni.  Helstu niðurstöðutölur:

A-hluti:

Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 735,8 m.kr. Rekstur og framkvæmdir  málaflokka eru áætlaður 798,2 m.kr. Gjöld vegna eignasjóðs og þjónustustöðvar eru áætluð 27 m.kr. Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því halli um 89,4 m.kr.   Aðrir liðir sem áhrif hafa eru 10,1 m.kr. Rekstur, framkvæmdir  og afborganir umfram tekjur eru því áætlaðar 99,6 m.kr.   Framkvæmdir eru áætlaðar um 81,2 m.kr.  Afborganir langtímalána eru áætlaðar 90 m.kr. og að tekið verði langtímalán að upphæð 100 m.kr. Með þessari áætlun hækka langtímaskuldir sveitarsjóðs um 10 m.kr.

B-hluti:
Hornafjarðarhöfn:  Gert er ráð fyrir að tekjur verði um 109 m.kr.  en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði 82,9 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði því 26,1 m.kr.  Framkvæmdir eru áætlaðar um 43,6 m.kr. Afborganir langtímalána eru áætlaðar 6,8 m.kr. og tekið verði langtímalán að upphæð 25 m.kr.

Vatnsveita:   Gert er ráð fyrir að tekjur verði 23,8 m.kr.  en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði og afskriftum  verði 19,8 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði 4,0 m.kr. Gert er ráð fyrir um 4 m.kr. til framkvæmda

Leiguíbúða:  Gert er ráð fyrir að tekjur verði 19,5 m.kr.  en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði 15,2 m.kr. Afborganir langtímalána 7,6 m.kr. Niðurstaðan er neikvæðu um 3,2 m.kr.

Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands:  Gert er ráð fyrir að tekjur verði 319 m.kr. og  gjöld verði 319 m.kr. 

Bæjarstjóri ítrekaði að fjárhagsstaða sveitarfélagsins er þröng og ekki svigrúm til stórra framkvæmda. 

Lagði hann til að bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og tengdra fyrirtækja fyrir árið 2005.

Kristín ræddi um neikvæða greiðsluafkomu bæjarsjóðs og framkvæmdir í sveitarfélaginu.  Hún taldi margar framkvæmdir þarfar og gerði Jöklasýningu sérstaklega að umtalsefni í þessu efni.  Hún lagði fram þá hugmynd að leitað væri eftir fjármunum frá einstaklingum til framkvæmda við Jöklasýningu.  Hún upplýsti að lítið svigrúm væri fyrir hendi að auka tekjur sveitarsjóðs þar sem núverandi tekjustofnar væru nær fullnýttir.  Hún lýsti því yfir að hún sitji hjá við atkvæðagreiðslu fjárhagsáætlunar m.a. vegna þess að hún taldi að lántaka upp á rúmlega 100 milljónir væri ekki heppileg um þessar mundir því að árið 2005 taldi hún vera ár þar sem draga ætti úr öllum framkvæmdum og greiða niður skuldir sveitarfélagsins.

Bæjarstjóri upplýsti að búið væri að endurfjármagna eldri lán.  Þá ræddi hann um að nauðsynlegt væri að taka lán til að framkvæma og að með framkvæmdum og viðhaldi væri verið að skapa atvinnu.  Bæjarstjóri gerði atvinnumál í sveitarfélagið að umtalsefni og taldi að undirstöðuatvinnugreinar í sveitarfélaginu stæðu vel.

Forseti bar upp fjárhagsáætlun upp til atkvæða.  Fjárhagsáætlun samþykkt með 6 atkvæðum en 1 sat hjá.

3.      Yfirstjórn sveitarfélagsins

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum um breytta yfirstjórn sveitarfélagsins.

Kristín taldi að tækifæri væri til staðar til að breyta sviðum og spara í rekstri sveitarfélagsins.  Hún gerði stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að umtalsefni og lýsti hún sig sammála því að sú staða verði lögð niður.  Hins vegar taldi hún gagnrýnivert að færa starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar inn í yfirstjórn sveitarfélagsins.  Hún gerði mikla uppbyggingu í Menningarmiðstöð og sýninga- og safnamálum í héraðinu á undanförnum árum og auknum sértekjum í stofnunina og taldi gagnrýnivert að setja Menningarmiðstöð undir tilraun í eitt ár.  Þá telur hún eðlilegt að auglýst sé eftir forstöðumanni og vísaði í 7. gr. stofnskrár Menningarmiðstöðvar um að auglýsa beri störf í Menningarmiðstöð.  Þá gerði hún starf framkvæmdastjóra HSSA að umtalsefni og ræddi til dæmis um að tvívegis hafi verið auglýst eftir framkvæmdastjóra en ekki fengist hæfur umsækjandi.  Kristín taldi að starf forstöðumanns Menningarmiðstöðvar væri áhugaverðari í augnablikinu og auðveldara væri að fá hæfan umsækjanda um það starf, t.d. vegna þess að þjónustusamningur við ríkið um HSSA rennur út árið 2006.  Kristín taldi því að staða framkvæmdastjóra stjórnsýslusvið ætti að renna inn í starf framkvæmdastjóra HSSA.  Reynir las upp bókun meirihluta menningarmálanefndar frá 1. des. 2004 og tók undir þau orð í bókuninni að ekkert skipulag væri fullkomið og rétt að og skylt væri að endurmeta það og breyta í ljósi breyttra aðstæðna.  Hann lýsti því yfir að hann samþykkti framlagðar tillögur fyrir sitt leyti sem tilraunaverkefni í eitt ár.

Björn fagnaði þeim tillögum sem lagðar voru fram.

Bæjarstjóri ræddi um að á hverjum tíma væri stjórnendum skylt að leita hagræðingar í rekstri og hagræðing verði til þess að skapa svigrúm á öðrum sviðum.  Bæjarstjóri gerði mun á veltu og starfsmannafjölda HSSA samanborið við Menningarmiðstöð að umtalsefni.  Hann áréttaði að um tilraun er að ræða.  Þá sagði bæjarstjóri að ekki sé hægt að gera kröfu um aðhaldssemi í rekstri hjá stofnunum sveitarfélagsins ef yfirstjórn gangi ekki á undan með gott fordæmi.  Þá gerði hann ráðningu framkvæmdastjóra HSSA að umtalsefni.   Bæjarstjóri gerði grein fyrir að þrátt fyrir að samningur sveitarfélagsins við ríkið um HSSA sé aðeins til 2006 verði stofnunin rekin áfram hvort sem ríkið og sveitarfélagið annist reksturinn.

Kristín gerði grein fyrir að hún væri ekki með hræðsluáróður heldur þætti henni skynsamlegra miðað við núverandi ástand að staða framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs rynni saman við starf framkvæmdastjóra HSSA.

Forseti bar upp tillögur um breytingar á yfirstjórn í sveitarfélaginu.  Fimm bæjarfulltrúar samþykktu tillögurnar, einn sat hjá og einn var á móti.

4.  Hafnarreglugerð – fyrri umræða.

Bæjarstjóri fór yfir reglugerðina og skýrði meðal annars út mörk hafnarinnar.  Bæjarstjórn samþykkir að vísa hafnarreglugerð til annarrar umræðu.

5.    Fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir.

Fundi slitið kl. 16.05

Fundargerðir

Dag.grein
06.06.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 192
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       
Þetta vefsvæði byggir á Eplica