Bæjarstjórn

Fudnargerð bæjarstjórnar 90

90. fundur

Fundur haldinn í Ekru, fimmtudaginn 6. október 2005 kl. 16:00. Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Elín Magnúsdóttir, Björn E. Traustason, Reynir Arnarson, Björk Pálsdóttir og Kristín G. Gestsdóttir. Ólafur Sigurðsson boðaði forföll. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson. Þrír áheyrendur voru mættir. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 304. fundur 8. september 2005

· Æskulýðs- og tómstundaráð 70. fundur 31. ágúst 2005.

Kristín spurði um flugvöllinn á Árnanesi. Þá ræddi hún um gatnamót Kirkjubrautar og Vesturbrautar. Kristín lýsti sig andvíga ákvörðun meirihluta bæjarráðs frá því fyrr um daginn um að hafna umsókn um greiðsluþátttöku fyrir framhaldsnema sem stundar tónlistarnám samhliða framhaldsnámi utan heimabyggðar.

Reynir spurði um starfshóp vegna uppbyggingu íþróttamannvirkja í tengslum við landsmót árið 2007.

Elín ræddi um ákvörðun bæjarráðs fyrr um daginn varðandi greiðsluþátttöku vegna tónlistarnáms.

Bæjarstjóri upplýsti að óskað hafi verið eftir fundi með æðstu stjórnendum Flugmálastjórnar varðandi Árnanesflugvöll. Þá greindi hann frá því að tækni- og umhverfissvið séu að vinna að því að auka öryggi gatnamóta Vesturbrautar og Kirkjubrautar. Bæjarstjóri sagði frá samtali sínu við framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga og fleiri aðila um greiðsluþátttöku vegna tónlistarnáms. Þá ræddi hann um Ungmennalandsmót á Hornafirði 2007 og taldi það mikla áskorun að halda slíkt mót. Í tengslum við það fjallaði bæjarstjóri um uppbyggingu íþróttamannvirkja.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 305. fundur 22.september 2005

· Atvinnumálanefnd 20. fundur 5. september 2005.

· Byggingar- og skipulagsnefnd 62. fundur 7. september 2005.

· Húsnæðisnefnd 63. fundur 6. september 2005.

· Menningarmálanefnd 70 . fundur 14. september 2005.

· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 727. fundur 26. ágúst 2005 til kynningar.

· Heilbrigðiseftirlit Austurlands 56/25. fundur 7. september 2005 til kynningar.

Elín gerði málefni upplýsingamiðstöðvar að umtalsefni.

Björk spurði um lóð að Hafnarbraut 38 þar sem fyrirhugað er að pósthús rísi. Þá spurði hún um sölu íbúða sveitarfélagsins. Björk lýsti sig fylgjandi því að upplýsingamiðstöð yrði flutt á Jöklasýningu.

Kristín gerði skipulagsbreytingar á Menningarmiðstöð að umtalsefni.

Albert ræddi um upplýsingamiðstöð og fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð að Hafnarbraut 38. Varðandi sölu á eignum taldi bæjarstjóri rétt að selja þær eignir sem eiga heima á markaði ef réttar aðstæður eru fyrir hendi. Þá sagði hann frá vinnu varðandi skipulagsbreytingar á Menningarmiðstöð og að það mál yrði tekið formlega á dagskrá á síðari stigum.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 306. fundur 29. september 2005.

· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 69. fundur 19. september 2005.

· SSA - fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs til kynningar.

Reynir ræddi um framkvæmdir við höfnina og óskaði eftir upplýsingum um dælinguna fyrir utan Ósinn.

Kristín gerði málefni Þjóðgarðsins í Skaftafelli að umtalsefni. Forseti bæjarstjórnar upplýsti um hvernig stjórnun og rekstri þjóðgarðsins sé háttað og greindi frá óskum ráðgjafanefndar þjóðgarðsins og sveitarstjórnar varðandi uppbyggingu hans.

Albert greindi frá dælingum á Grynnslunum og framkvæmdir við bryggju við netagerðina.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 89. fundur 8. september 2005, fundargerð áður samþykkt.

2. Málefni dvalarheimilis

Bæjarstjóri rakti aðdraganda málsins þar sem fram kom m.a. að tillaga kom frá starfsfólki HSSA um breytingar á rekstri og fyrirkomulagi stofnunarinnar sem fólust í að leggja niður starfsemi í gamla Skjólgarði við Hvannabraut. Tillagan gerði ráð fyrir að eldhúsið flyttist á hjúkrunarheimilið, dvalardeildin í Mjallhvíti og dagvistin í Ekru. Málið hefur fengið mikla umfjöllun á vettvangi sveitarstjórnar, verið kynnt vandlega fyrir skjólstæðingum og eldri borgurum ásamt starfsmönnum í heilbrigðisráðuneytinu. Tillagan er í samræmi við almenna stefnumörkun og þróun þessara mála í þjóðfélaginu. Kristín lýsti sig sammála breytingunum en taldi að kynna þyrfti málið betur til að skapa betri sátt. Bæjarstjóri greindi frá því að rætt hafi verið við alla sem beinna hagsmuna hafa að gæta varðandi málið. Þá greindi hann frá fjölmennum fundi með eldri borgurum þar sem hann kynnti m.a. málefni dvalarheimilis.

Kristín greindi frá samtölum sínum við ýmsa íbúðareigendur í Ekrunni um eignaskipti í húsinu sem varðar aukin umgang í sameign. Forseti gerði grein fyrir eignaskiptingu í Ekrunni. Þá ræddi hún rekstur dvalarheimilis og greindi frá að hann lækki við breytingarnar. Auk þess taldi hún að þjónusta og öryggi batnaði.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu um dvalarheimili. Kristín sat hjá.

3. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2005

Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2005 sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Helstu breytingar á fjárhagsáætluninni eru þær að skatttekjur í heild hækka um 82,4 m.kr. m.a. vegna aukaframlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um 36 m.kr. og hækkun á útsvari um 25,6 m.kr. Heildarupphæð skatttekna er þá um 818,3 m.kr.

Útgjöldin aukast hins vegar um 50,5 m.kr. m.a. vegna fráveitu- og gatnaframkvæmda sem voru á áætlun 2004 um 31,8 m.kr. Heildarupphæð útgjalda eru um 875,8 m.kr. Ekki er gert ráð fyrir samþykktri lántöku að upphæð 100,0 m.kr. Þar með lækka langtímalán sem nemur afborgunum um 90,0 m.kr. en þar á móti lækkar hreint veltufé um 75,4 m.kr.

Björn vék af fundi kl. 17.30 og tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.

Samþykkt með fjórum atkvæðum.

Kristín sat hjá.

Halldóra vék af fundi kl. 17.35 og Elín tók við fundarstjórn.

4. Fyrirspurnir

Engar.

Fundi slitið kl. 17:50

Fundargerðir

Dag.grein
06.06.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 192
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       
Þetta vefsvæði byggir á Eplica