Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 92

92. fundur

Fundur haldinn í Ekru, fimmtudaginn 8. nóvember 2005 kl. 16:00.

Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Elín Magnúsdóttir, Björn E. Traustason, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 307. fundur 6. október 2005

· Félagsmálaráð Hornafjarðar 132. fundur 27. september 2005.

· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 63. fundur29. september 2005 ásamt Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs sama dag.

· Skólanefnd Hornafjarðar 75. fundur 28. september 2005.

· Æskulýðs- og tómstundarráð 71. fundur 26. september 2005.

· Ráðgjafanefnd þjóðgarðsins í Skaftafelli, dags. 21. feb. 2005 og 12. ágúst 2005.

Kristín spurði um hvernig gengi að fjármagna rekstur Háskólaseturs. Forseti ræddi um uppbyggingu íþróttamannvirkja í tengslum við landsmót 2007.

Bæjarstjóri upplýsti um vinnu varðandi fjármögnun Háskólaseturs og ræddi um vinnu starfshóps um uppbyggingu mannvirkja í tengslum við landsmót.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 308. fundur 20. október 2005

· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 64. fundur, 6.október2005.

· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 71. fundur, 10. október2005.

· Félagsmálaráð Hornafjarðar 133. fundur, 11. október 2005.

Björn Emil spurði um viðræður við flugrekstraraðila og hvort skýringar hafi fengist á því að flug hafi fallið niður þrátt að vel hafi viðrað til flugs.

Reynir ræddi um flutning upplýsingamiðstöðvar og spurði um fjárhagslegan ávinning í tengslum við það. Þá ræddi hann um gildi Háskólaseturs fyrir samfélagið og lagði áherslu á að fjármögnun yrði tryggð. Reynir upplýsti um samtöl sín við flugrekstraraðila.

Kristín gerði flugmál að umtalsefni og tók undir bókun bæjarráðs. Hún spurði um áhrif flóða á mannvirki í sveitarfélaginu.

Elín spurði um úrræði sem til staðar eru í sveitarfélaginu fyrir börn sem verða fyrir ofbeldi og hvort kennurum og þeim sem vinna með börnum sé boðið upp á námskeið í því að liðsinna þeim börnum.

Forseti tók undir bókun bæjarráðs varðandi góð viðbrögð starfsmanna við þær aðstæður sem sköpuðust í flóðum. Þá ræddi hún um tíða flutninga á upplýsingamiðstöð. Einnig ræddi hún um flugmál og upplýsti um fund sem hún átti með flugrekstraraðilum.

Bæjarstjóri upplýsti um viðræður um flugmál og þá hagræðingu sem hlýst af flutningi upplýsingamiðstöðvar.

Einnig ræddi hann um fráveitumál. Hann svaraði að tjón hafi orðið sáralítil á eignum sveitarfélagsins vegna flóða.

Þá ræddi hann um hvernig tekið er á ofbeldi á börnum og upplýsti m.a. að ákveðið er að halda námskeið um þetta efni fyrir kennara og nemendur í grunnskólunum sem fyrsta skref í þessa veru.

Elín lagði til að starfsfólk leikskóla yrði einnig boðið upp á námskeið til að liðsinna börnum sem verða fyrir ofbeldi.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 309. fundur fimmtudaginn 27. október 2005

· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar, 72. fundur 24. október 2005.

· Samband íslenskra sveitarfélaga, 728. fundur, dags. 23. september.

Björn Emil spurði um leiksvæði í Nesjahverfi og lóðaframboð í sveitarfélaginu.

Kristín gerði samgöngur milli Lóns og Álftafjarðar að umtalsefni.

Reynir tók undir orð Kristínar. Þá upplýsti hann um skýrslu sem unnin hefur verið fyrir SSA um jarðgöng á Austurlandi.

Forseti tók undir orð Kristínar og Reynis.

Bæjarstjóri upplýsti um ástæður þess að dregist hefur að koma upp leiksvæði í Nesjahverfi. Þá ræddi hann um lóðaframboð í sveitarfélaginu.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 310. fundur, fimmtudaginn 3. nóvember 2005

· Félagsmálaráð, 134. fundur, 25. október 2005.

· Skólanefnd, 76. fundur, 26. október 2005

Elín ræddi um tillögur um breytingu á skipan lögregluembætta og las upp eftirfarandi bókun:

„Bæjarstjórn Hornafjarðar fellst á þau megin markmið sem sett eru fram í tillögum framkvæmdanefndar um nýskipan lögreglumála. Bæjarstjórn telur að rannsókn og saksókn stærri mála styrkist við sérhæfingu og öflugri deildir. Aftur á móti ítrekar bæjarstjórn að Austur-Skaftafellssýsla hefur landfræðilega sérstöðu í þessum málum eins og svo mörgum öðrum. Það er vandséð að íbúar á Suðausturhorninu fái betri löggæsluþjónustu undir stjórn sýslumannsins á Eskifirði. Austur - Skaftafellssýsla er mitt á milli tveggja lögregluumdæma samkvæmt tillögum framkvæmdanefndarinnar og vegalengdir innan sveitarfélagsins miklar, um 200 km enda á milli. Auk þess kallar vaxandi umferð ferðamanna á virka og sýnilega löggæslu í héraðinu. Það er því brýnt, áður en endanleg ákvörðun er tekin, að bæjarstjórn Hornafjarðar fái fund með dómsmálaráðherra til að ræða skipan lögreglumála í Austur-Skaftafellssýslu.“

Elín óskaði eftir upplýsingum um fund á Egilstöðum um þessi mál.

Björn spurði um skýrslu Hönnunar um sundlaugarmál.

Forseti ræddi um innihald skýrslu Hönnunar.

Bæjarstjóri upplýsti um fund á Egilsstöðum um lögreglumál.

Forseti las upp bókun og lagði hana fram til atkvæðagreiðslu. Samþykkt samhljóða.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 90. fundur 6. október 2005 áður samþykkt.

2. Endurskoðun á fjárhagsáætlun HSSA 2005

Samþykkt samhljóða.

3. Fjárhagsáætlun 2006 - fyrri umræða

Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði. Helstu niðurstöðu tölur við fyrri umræðu eru þessar:

A-hluti:

Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 811,3 m.kr.

Rekstur málaflokka eru áætlaður 752,5 m.kr.

Gjöld vegna eignasjóðs og þjónustustöðvar eru áætluð 20.3 m.kr.

Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því afgangur um 38,5 m.kr.

Greiðslubyrði lána er um 22,8 m.kr.

Rekstur og afborganir umfram tekjur eru því áætlaðar 15,7 m.kr.

B-hluti:

 Hornafjarðarhöfn:

 Gert er ráð fyrir að tekjur verði 54,1 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði um 31,9 m.kr.

Tekjur umfram gjöld verði því um 22.3 m.kr.

Vatnsveita:

Gert er ráð fyrir að tekjur verði 24.3 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði og afskriftum verði 20,2 m.kr.

Tekjur umfram gjöld verði um 4,1 m.kr.

Leiguíbúðir:

Gert er ráð fyrir að tekjur verði um 20,4 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði um 20,4 m.kr.

Afgangur til greiðslu afborgana verður um 5,4 m.kr. en afborganir langtímalána er um 8 m.kr.

Niðurstaða er því um 2,7 m.kr. halli.

Fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands verður tekin fyrir við aðra umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjóri sagði mikinn áhuga á byggingu sundlaugar og ljúka því verki fyrir ungmennamót í ágúst UMFÍ 2007. Um er að ræða framkvæmd sem gæti kostað um 250 m.kr. fyrir utan aðrar nauðsynlegar framkvæmdir á næstu árum. Verulegur kostnaður mun strax falla til á næsta ári verði ákveðið að byggja nýja sundlaug á þessum tíma.

Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu að álagningarreglum fyrir árið 2006:

Útsvar 13,03%

Fasteignaskattur

  • íbúðarhúsnæði 0,50%
  • atvinnuhúsnæði 1,62%

Lóðarleiga

  • íbúðarlóðir (af lóðarmati) 1,00%
  • iðnaðarlóðir (af lóðarmati) 1,00% aðrar lóðir (af lóðarmati) 1,00%

Holræsagjald 0,30%

Vatnsgjöld 0,18%

Forseti ræddi um uppbyggingu íþróttamannvirkja.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillög að álagningarreglum 2006 með fimm atkvæðum. Kristín sat hjá.

Bæjarstjórn vísar fjárhagsáætlun 2006 til seinni umræðu.

4. Fyrirspurnir

Engar.

Fundi slitið kl. 18.15

Fundargerðir

Dag.grein
06.06.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 192
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       
Þetta vefsvæði byggir á Eplica