Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 93

93. fundur

Fundur haldinn í Ekru, fimmtudaginn 1. desember 2005 kl. 16:00.

Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, forseti, Einar Karlsson, Björn E. Traustason, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson, Friðrik Þór Ingvaldsson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

1. Fundargerðir

Bæjarráð Hornafjarðar 311. fundur 8. nóvember 2005.

· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 64. fundur 1. nóvember 2005.

Friðrik Þór Ingvaldsson spurði um leyfi fyrir eyðingu á vargfugli og hvort ekki væri ástæða til að auka eyðingu vargfugls. Þá óskaði hann eftir upplýsingum um hvað hefði farið fram á fundi með Búmönnum. Að endingu spurði hann um viðræður við samgönguráðuneytið og póst- og fjarskiptastofnun varðandi háhraðateningar í dreifbýli.

Bæjarstjóri upplýsti um hvernig leyfisveitingum um eyðingu vargfugla væri háttað. Hann ræddi um fjölgun sílamáfa en taldi það umdeilt hvernig haga ætti þessum málum í framtíðinni. Þá sagði hann frá viðræðum við Búmenn varðandi breytingar á dvalarheimili. Að lokum gerði hann grein fyrir vinnu sem farið hefur fram við að koma á háhraðatengingum í dreifbýli og greindi m.a. frá því að söfnun undirskrifta hæfist í Nesjum á næstu dögum.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 312. fundur 17. nóvember 2005

· Atvinnumálanefnd Hornfjarðar 21. fundur 7. nóvember 2005.

· Byggingar- og skipulagsnefnd 63. fundur 9. nóvember 2005.

· Félagsmálaráð Hornafjarðar 135. fundur 8. nóvember 2005.

· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 70. fundur 9. nóvember 2005.

· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 72. fundur 9. nóvember 2005.

· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 73. fundur 11. nóvember 2005.

Björn Emil Traustason spurði um NEST verkefnið, lestunaraðstöðu á Austurfjörum og Bátstangabryggju.

Kristín G. Gestsdóttir spurði um jarðhitaleit. Hún ræddi um rokktónleika á vegum nemendafélags FAS og hrósaði framtaki félagsins.

Friðrik Þór tók undir orð Kristínar um nemendafélag FAS. Hann ræddi um gatnagerð á Höfn og þá þrengingu sem hefur verið gerð við Ránarslóð og Bogaslóð. Hann óskaði eftir upplýsingum um afgreiðslu framkvæmdasjóðs fatlaðra og hver væri stefnan í framhaldinu.

Bæjarstjóri sagði að fyrirhuguð er ráðstefna þann 12. janúar n.k. í tengslum við NEST verkefnið. Þá upplýsti hann um framkvæmdir við Bátstangabryggju og greindi frá ákvörðun Hafnarstjórnar að byggja upp aðstöðu á Austurfjörum. Þá gerði hann grein fyrir stöðu í jarðhitaleit. Bæjarstjóri tók undir orð um nemendafélag FAS. Bæjarstjóri sagði að breytingar á gatnamótum Ránarslóðar og Bogaslóðar væru stöðluð hönnun. Að endingu upplýsti hann um vinnu varðandi uppbyggingu íbúða fyrir fatlaða.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarráð Hornafjarðar 313. fundur 25. nóvember 2005

· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 53. fundur 15. nóvember 2005.

· Heilbrigðis og öldrunarráð 65. fundur 19. október og 66. fundur 16. nóvember 2005.

Reynir Arnarson spurði um bréf varðandi námu í Friðsæld.

Bæjarstjóri upplýsti um málið.

Fundargerð samþykkt.

Bæjarstjórn Hornafjarðar 92. fundur 8. nóvember 2005 áður samþykkt.

2. Fjárhagsáætlun 2006 – síðari umræða

Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og rakti helstu niðurstöðutölur:

A-hluti:

Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 811,3 m.kr. og aðrar tekjur um 176.4.

Rekstur A-sjóðs er áætlaður 936 m.kr.

Fjármagnsliðir eru áætlaðir 18,5 m.kr.

Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því hagnaður um 39,4 m.kr.

Handbært fé frá rekstri er um 93 m.kr.

Fjárfestingar eru 150 m.kr.

Afborganir langtímalána 90 m.kr. og tekin verða ný langtímalán 70 m.kr. og handbært fé í árslok verða 23,5 m.kr.

Með þessari áætlun lækka langtímaskuldir sveitarsjóðs um 20 m.kr.

B-hluti:

Hornafjarðarhöfn:

Gert er ráð fyrir að tekjur verði um 103,5 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði 81 m.kr.

Tekjur umfram gjöld verði því 22,5 m.kr.

Framkvæmdir eru áætlaðar um 35,7 m.kr.

Afborganir langtímalána eru áætlaðar 8,3 m.kr. og tekið verði langtímalán að upphæð 16 m.kr.

Vatnsveita:

Gert er ráð fyrir að tekjur verði 24,3 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði og afskriftum verði 20,2 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði 4,0 m.kr.

 Gert er ráð fyrir um 4 m.kr. til framkvæmda

Leiguíbúðir:

Gert er ráð fyrir að tekjur verði 20,4 m.kr. en rekstrargjöld ásamt fjármagnskostnaði verði 17,8 m.kr.

 Afborganir langtímalána 8 m.kr. Niðurstaðan er neikvæðu um 2,6 m.kr. Heilbrigðisstofnun Suðausturlands: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 338,2 m.kr. og gjöld verði 338,2 m.kr. 

Heildarumsvif sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja er um 1,7 milljarður kr.

Bæjarstjóri fór yfir framkvæmdir og rekstur sveitarfélagsins undanfarin ár. Nefndi hann uppbyggingu Nýheima, bryggju á Krosseyjabakka, dýpkun á Grynnslunum og smíði Bátstangabryggju sem nú er fyrirhuguð og opnun nýrrar og endurbættrar Jöklasýningar. Einnig ræddi hann um gatnagerð og fyrsta áfanga í uppbyggingu fráveitu. Þá fór bæjarstjóri nokkrum orðum um aukna þjónustu í skólamálum, t.d. bætta aðstöðu fyrir verkmenntagreinar og aukning á ýmissi stoðþjónustu.

Á liðnu kjörtímabili hafa verið gerðir samningar við ýmis félagasamtök, t.d. félag aldraðra, Sindra, golfklúbbinn og hestamannafélagið. Í máli bæjarstjóra kom fram að margt sé í deiglunni sem geti aukið bjartsýni fólks á framtíð sveitarfélagsins. Í því sambandi tiltók hann uppbyggingu útibús Fiskistofu á Hornafirði, áhuga Rannsóknarstofu Fiskiðnaðarins á að koma hér upp starfstöð, vaxtarsamning, klasaverkefni, norðurljósaverkefnið og fleira.

Samgöngur koma til með að batna á næstu árum með tilkomu nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljóts. Sömuleiðis nefndi hann miklar framkvæmdir á vegum hafnarinnar s.s. sandfangara í Einholtskletta og endurbætur á bryggju við Hafnarvog. Þá ræddi hann um eflingu þjónustu t.d. í tengslum við gerð nýrrar skólastefnu, breytingar á öldrunarþjónustu og bættri aðstöðu fyrir fatlaða.

Lagði bæjarstjóri til að eftirfarandi bókun fylgdi fjárhagsáætluninni:

Með lækkun langtímalána þetta kjörtímabil hefur verið skapað svigrúm til þess að ráðast í þær miklu framkvæmdir sem nú er ráðgert. Verulegar framkvæmdir hafa samt verið á þessu kjörtímabili og þessi þróun hefur átt sér stað án þess að það hafi komið niður á þjónustu sveitarfélagsins.

Vegna afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2006 og fyrirliggjandi 3ja ára áætlunar 2007 – 2009 samþykkir bæjarstjórn að bygging nýrrar sundlaugar og framkvæmdir við íþróttamannvirki verði forgangsverkefni árin 2006 og 2007. Bæjarstjórn samþykkir ákvörðun bæjarráðs um skipan framkvæmda- og byggingarnefndar sem vinna skuli eftir erindisbréfi sem lagt var fyrir bæjarráðsfund 1. desember 2005. Fyrsti valkostur nefndarinnar skal vera að skoða byggingu 25 m sundlaugar með staðsetningu vestan Heppuskóla og tengingu við íþróttahúsið. Jafnframt skal nefndin skoða hvaða kostir eru álitlegastir varðandi íþróttavöll með góðri frjálsíþróttaaðstöðu. Meðan á þessum framkvæmdum stendur er ljóst að ekki verða aðrar fjárfrekar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins en bæjarstjórn felur starfsmönnum að gera tillögur um nauðsynleg verkefni sem framkvæma þarf á næsta ári.

Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og tengdra fyrirtækja fyrir árið 2006.

Reynir Arnarson lýsti ánægju með þá samstöðu og bjartsýni sem ríkir í samfélaginu. Hann ræddi í nokkrum orðum um þróun í stöðu fjármála í sveitarfélaginu. Hann sagði ánægjulegt að íþróttamannvirki væru komin á dagskrá en benti á að þar með væru þau sett fram fyrir fráveitu í forgangsröðun.

Kristín G. Gestsdóttir lýsti yfir ánægju með fjárhagsáætlun 2006. Hún ræddi um skipan framkvæmdanefndar frá því fyrr um morguninn. Hún spurði hvort það samrýmdist fundarsköpun að bóka um 3ja ára áætlun undir öðrum lið en þeim sem fjallar sérstaklega um þá áætlun.

Forseti svaraði fyrirspurn Kristínar varðandi fundarsköp og benti á að bókunin ætti ekki sérstaklega við 3ja ára áætlun.

Bókunin væri sett þannig upp að samræmis væri gætt á milli 3ja ára áætlunar og fjárhagsáætlunar.

Friðrik Þór Ingvaldsson fagnaði þeim áfanga sem stigið er með því að ákveða umtalsverða fjárhæð til uppbyggingu íþróttamannvirkja. Hann ræddi um breytingar á rekstri sundlaugar.

Kristín G. Gestdóttir ræddi um rekstur leiguíbúða og taldi að lausn yrði að fást á þeim málum. Forseti gerði góða samstöðu í bæjarstjórn að umtalsefni. Þá fór hún yfir fjárhagsáætlun og undirstrikaði að miklir fjármunir væru umleikis í rekstri sveitarfélagsins.

Bæjarstjóri ræddi um skuldastöðu sveitarfélagsins í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir. Bæjarstjóri skoraði á áhugafólk um sundlaugarbyggingu að stofna vinasamtök laugarinnar með það að markmiði að afla fjár til að gera framkvæmdina enn glæsilegri.

Forseti bar fjárhagsáætlun 2006 og meðfylgjandi bókun upp til atkvæða.

Samþykkt með sex atkvæðum. Kristín G. Gestsdóttir sat hjá.

Forseti bar fjárhagsáætlun HSSA 2006 upp til atkvæða.

3. Þriggja ára áætlun – fyrri umræða

Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og sagði m.a. Bæjarstjórn þarf samkvæmt lögum að gera þriggja ára áætlun fyrir sjóði sveitarfélagsins og að þessu sinni nær hún yfir árin 2007 til 2009. Markmiðið er að varpa ljósi á það svigrúm sem er til sérstakra framkvæmda og stærri fjárfestinga á tímabilinu. Sömuleiðis þarf að skila þriggja ára áætlun fyrir samstæðureikning þ.e.a.s. bæði A-hluta og B-hluta sem eru vatnsveitan, höfnin og íbúðakerfið.

Áætlun til þriggja ára eða lengri tíma sem byggist á fjárhagsáætlun ársins í ár getur aldrei verið alveg nákvæm þó svo að rekstur sveitarfélagsins sé í mjög föstum skorðum. En þær eru samt gott tæki til að átta sig á ákveðinni þróun og hvaða möguleikar eru á framkvæmdum til lengri tíma litið.

Langtímaáætlun er líka stefnumótandi og segir til um hvaða markmið sveitarstjórn setur um stöðu sjóðanna og sveitarfélagsins í heild. Rekstraráætlun er á föstu verðlagi og allar upphæðir miðast við fjárhagsáætlun 2006.

Gert er ráð fyrir varanlegum fjárfestingum að upphæð 381,3 m.kr., á árunum 2007 til 2009.

Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalsjóður framkvæmi fyrir 250 m.kr. og taki langtímalán að upphæð 333,0 m.kr. á móti eru afborganir langtímalán 316,4 m.kr.

Langtímalán aðalsjóðs hækka því á tímabilinu um 16,6 m.kr.

Framkvæmdir á vegum hafnarsjóðs eru 119,3 m.kr.,ný langtímalán að upphæð 101,0 m.kr. á móti afborgun langtímalána að upphæð 70,1 m.kr. Langtímalán hafnarsjóðs hækka á því tímabilinu um 31 m.kr.

Bæjarstjóri þakkaði samstarfsmönnum og bæjarfulltrúum fyrir vinnu við fjárhagsáætlun.

Kristín G. Gestsdóttir ræddi um 3ja ára áætlun. Þá lýsti hún yfir ánægju með að farið væri af stað uppbygging íþróttamannvirkja sem tekið væri tillit til í 3ja ára áætlun. Kristín lýsti því yfir að þetta væri síðasta fjárhagsáætlun sem hún tæki þátt í að móta og þakkaði bæjarfulltrúum fyrir samstarfið.

Forseti þakkaði samstarfsmönnum og starfsfólki fyrir vinnu við fjárhagsáætlun.

Forseti vísaði áætluninni til síðari umræðu.

4. Fyrirspurnir

Engar.

Fundi slitið kl. 18.00

Fundargerðir

Dag.grein
06.06.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 192
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
12.08.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 157
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
18.12.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 139
04.12.2008 Fundargerð bæjastjórnar 137
06.11.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 136
02.10.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 135
16.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 134
04.09.2008 Fundargerð bæjarrstjórnar 133
14.08.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 132
05.06.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 131
05.05.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 130
02.04.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 127
13.03.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 126
06.02.2008 Fundargerð bæjarstjórnar 125
06.12.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 124
15.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 123
01.11.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 122
01.10.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 121
06.09.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 120
09.08.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 119
14.06.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 117
10.05.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 116
30.04.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 115
08.03.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 113
06.02.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 112
03.01.2007 Fundargerð bæjarstjórnar 111
14.12.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 110
07.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 109
02.11.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 108
05.10.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 107
07.09.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 106
29.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 105
10.08.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 104
05.07.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 103
15.06.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 102
31.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 101
11.05.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 100
19.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 99
06.04.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 98
23.03.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 97
27.02.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 96
19.01.2006 Fundargerð bæjarstjórnar 95
01.12.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 93
08.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 92
07.11.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 91
06.10.2005 Fudnargerð bæjarstjórnar 90
08.09.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 89
16.06.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 88
12.05.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 87
27.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 85
08.04.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 84
10.03.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 83
17.02.2005 Fundargerð bæjarstjórnar 82
22.12.2004 Fundargerð bæjarstjórnar 80
23.11.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 78
28.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 77
07.10.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 76
02.09.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 75
03.06.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 74
06.05.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 73
01.04.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 72
18.03.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 71
12.02.2004 Fundargerð Bæjarstjórnar 70
19.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 69
04.12.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 68
30.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 67
02.10.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 66
28.08.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 65
06.06.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 64
12.05.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 63
02.04.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 61
06.03.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 60
06.02.2003 Fundargerð Bæjarstjórnar 59
12.12.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 58
14.11.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 57
19.10.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 56
19.09.2002 Fundargerð bæjarstjórnar 55
20.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 53
10.06.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 52
29.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 51
02.05.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 50
11.04.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 49
07.03.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 48
07.02.2002 Fundargerð Bæjarstjórnar 47
                       
Þetta vefsvæði byggir á Eplica