Fundargerð bæjarstjórnar 109
109. fundur
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir, Ásgrímur Ingólfsson, Guðrún Ingimundardóttir, Björk Pálsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Forseti bauð fundarmenn velkomna og óskaði jafnframt eftir því að fundurinn samþykki þær
breytingar á dagskrá að undir 5. lið verði tekin fyrir breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Tillaga um dagskrárbreytingu samþykkt samhljóða.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 350. fundur þriðjudaginn 3. október 2006
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 151. fundur 26. september 2006.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 20. september 2006.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 21. fundur 18. júlí 2006, 22. fundur 7. september 2006 og 23. fundur 14. september 2006.
Björn Ingi ræddi fundargerð nefndar um íþróttamannvirki og spurðist fyrir um stöðu mála, hvenær búast mætti við að útboðsgögn yrðu tilbúin og einnig um sig á púða. Hjalti greindi frá því að samkv. upplýsingum frá hönnuðum væri um hálfur mánuður þar til gögn yrðu tilbúin. Sagðist hann vonast til að hönnun yrði a.m.k. lokið í nóvembermánuði. Hægt hafi á sigi púðans en því þó ekki lokið. Mælst hafi um 1 sentimetra sig á ríflega 28 dögum.
Hjalti ræddi um skýrslu ráðgjafarnefndar umhverfisráðuneytisins um stofnun Vatnajökulsþjóðgarð sem lögð var fyrir ráðherra þann 3. nóvember sl. Hjalti þakkaði þeim sem komið hafi að þessu máli í gegnum tíðina. Hann lagði áherslu á að þjóðgarðsmál hafa verið ofarlega á baugi í samfélaginu í töluverðan tíma og fólk telji að mikil tækifæri séu fólgin í stofnun þjóðgarðs. Í skýrslunni kom margt athyglisvert fram að mati Hjalta og ræddi hann um ýmis atriði í því sambandi.
Guðrún ræddi samning milli sveitarfélagsins og Umf. Sindra um söfnun á fernum. Fagnaði hún þessu skrefi og sagði sig dreyma um að með jarðgerðavél mætti einnig safna öllum pappa sem til fellur.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 351. fundur þriðjudaginn10. október 2006
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 61. fundur 28. september 2006.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjaraðar 82. fundur 28. september 2006.
· Stýrihópur við gerð skólastefnu, 2. fundur 21. september og 3. fundur 2. október 2006.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 64. fundur 27. september 2006.
Björk ræddi fund umhverfisnefndar og flokkun á sorpi og gerði einnig að umtalsefni fundargerð umhverfisnefndar, 57. fund, þar sem rætt er um samstarf við endurvinnslufyrirtækið Saga Plast. Taldi hún okkur vera aftarlega á merinni í þeim efnum. Spurði hún hvenær mætti búast við kynningu meðal bæjarbúa um flokkun á sorpi. Einnig ræddi hún slæma umgengni í bænum og hvatti til bættrar umgengni.Björk spurðist fyrir um ruslatínslu og tilhögun hennar. Þá spurði hún um hvenær störfum lyki við skólastefnu. Björk spurðist og fyrir um hugsanlega flutningsstyrki til fyrirtækja og tilboð í Austurbraut 10.
Elín greindi frá vinnu stýrihóps við skólastefnu og sagði stefnt að lokaskilum fyrir jólafrí.
Hjalti fagnaði umræðu um umhverfismál. Sagði flokkun á sorpi vera til umræðu. Fernusöfnun væri ákv. skref en fleiri þyrfti að stíga. Einnig ræddi hann samkomulag um ruslatínslu og mögulega flutningsstyrki til fyrirtækja og hvers vegna tilboði í Austurbraut 10 hafi verið hafnað.
Reynir ræddi flutningsstyrk til fyrirtækja og sagði mikilvægt að skoða sem flesta möguleika í atvinnumálum en efaðist þó um að styrkja ætti fyrirtæki sem yrðu í samkeppnisrekstri við fyrirtæki sem fyrir eru á staðnum.
Björk sagðist vilja ítreka óskir um svar við fyrirspurn um samstarf við Saga Plast.
Hjalti svaraði fyrirspurn.
Björn Ingi spurðist fyrir um efni sem til fellur þegar hreinsað verður efsta lag á íþróttavelli. Einnig spurðist hann fyrir um viðræður við forsætisráðuneyti um Ratsjárstofnun.
Hjalti sagði ekki vera búið að ákveða neitt um hvað við það efni verður gert. Hvað varðar fyrirspurn um Ratsjárstofnum greindi hann frá fundum með embættismönnum um mengun á Stokksnesi og einnig greindi hann frá væntanlegum fundi með stjórnvöldum um málefni Ratsjárstofnunar.
Reynir ræddi umhverfismálin og stöðu þeirra.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 352. fundur þriðjudaginn 17. október 2006
· Byggingar- og skipulagsnefnd 70. fundur 11. október 2006.
· Menningarmálanefnd 81. fundur, 11. október 2006.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 737. fundur 27. september 2006.
· Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, 20. landsþing 27. september 2006.
Björk Pálsdóttir ræddi efnistöku í Friðsæld og takmörkun á efnistöku. Hún spurðist fyrir um málverkakaup, sbr. fundargerð menningarmálanefndar. Þá spurðist hún fyrir um safn verka Svavars Guðnasonar og spurði hvort ekki mætti gera það sýnilegra. Þá ræddi hún stöðu á tækni- og umhverfissviði sveitarfélagsins og sagði slæmt ef þar ynni enginn tæknimenntaður maður.
Guðrún svaraði Björk varðandi málverkakaup og tók undir orð Bjarkar um verk Svavars Guðnasonar, sagði að þau mættu vera sýnilegri.
Elín tók einnig undir orð Bjarkar um verk Svavars Guðnasonar. Benti hún á að t.d. mætti setja þau verk upp í skólabyggingum.
Reynir sagði fyrirtæki hafa tekið á leigu málverk í eigu sveitarfélagsins og borgað fyrir það ákv. upphæð. Sagði hann þetta hafi komið ágætlega út.
Hjalti sagði efnistöku í Friðsæld vera til umfjöllunar og skoðunar. Hann sagði og bagalegt að tveir starfsmenn tækni- og umhverfissviðs skuli hætta á sama tíma. Benti hann á mikla eftirspurn eftir fólki með tæknimenntun og að enginn tæknimenntaður maður hefði sótt um starfið þrátt fyrir ítrekaða auglýsingu. Því hefði verið hugað að öðrum leiðum, svo sem úthýsingu verkefna og ákv. breytingum á sviðinu til að leysa þessi mál
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 353. fundur fimmtudaginn 26. október 2006
· Atvinnumálanefnd 27. fundur, 16. október 2006.
· Félagsmálaráð 152. fundur 12. október 2006.
· Hafnarstjórn 85. fundur, 17. október 2006.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 74. fundur 18. október ásamt fundargerð Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs sama dag.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 62. fundur 16. október 2006.
· Haust, fundargerð aðalfundar2006 til kynningar ásamt stofnsamningi og skýrslu stjórnar.
Björk ræddi um þjónustusamning við ríkið um Heilbrigðisstofnun Suðausturlands og reiknilíkan heilbrigðisráðuneytis sem kæmi niður á stofnuninni ef samþykkt yrði, það mætti ekki verða. Þá lagði hún áherslu á að minnihlutinn ætti einnig fulltrúa í samninganefnd um áframhaldandi þjónustusamning. Þannig kæmum við samhentari og sterkari til leiks. Einnig ræddi hún mengun á Stokksnesi og hreinsun. Björk ræddi og samgöngumál, bréf Guðbrands Jóhannssonar, Hornafjarðarflugvöll og samskipti við flugfélagið Erni, nýjan flugrekstraraðila.
Árni tók undir orð Bjarkar um reiknilíkanið og sagði enga eftirgjöf vera í þeim efnum. Hann sagðist líta svo á heilbrigðis- og öldrunarráð (hör) væri hið pólitíska bakland samninganefndarinnar sem væri skipuð formanni hör, bæjarstjóra og framkvæmdastjóra HSSA .
Hjalti tók undir með þeim Árna og Björk um reiknilíkanið. Þá greindi hann frá viðræðum við embættismenn syðra vegna mengunarmála á Stokksnesi og þá hættu sem af þeim kann að stafa. Þá ræddi hann erindi Guðbrands Jóhannssonar um flugvöllinn og gerði að umtalsefni reglur um millilandaflugvelli sem erfitt væri að framfylgja á þeim völlum sem nú þegar falla undir þá skilgreiningu. Hann sagði forsvarsmenn væntanlegs flugrekenda vera búna að leggja inn pöntun á 19 manna vél búna jafnþrýstiklefa. Sagði hann þá hafa fullan huga á að sinna þessu verki vel samkvæmt samtölum við þá.
Reynir ræddi bréf um kostnaðarskiptingu sjúkrastofnana og úrskurð gerðardóms í þeim efnum. Lagði hann áherslu á að vel þurfi að fylgjast með því máli.
Björn Ingi ræddi halla á HSSA, samkvæmt 9 mánaða uppgjöri og spurðist fyrir um hvort þeir fjármunir hafi verið sóttir til ríkisins. Þá gerði hann athugasemd við það að minnihlutanum væri bolað út úr nefndum, sbr. samninganefnd um þjónustusamninginn.
Árni lagði áherslu á hlutverk hör í þessum efnum og að þannig hafi allir flokkar aðgang að þessum samningaviðræðum. Sagði hann halla, samkv. 9 mán. uppgjöri einnig vera verkefni í þessum samningaviðræðum.
Björk taldi eðlilegast að einn úr minnihlutaflokknum væri einnig í samninganefndinni til viðbótar við þá sem þar eru fyrir.
Reynir sagði bæjarstjóra, framkvæmdastjóra HSSA og formann hör vera í þessum beinu samskiptum við ráðuneytið, hör myndaði síðan baklandið eins og fram hafi komið.
Hjalti taldi þessi mál vera í góðum farvegi og vera unnin í fullu samráði við hör.
Björn Ingi spurðist fyrir um kaup á óseldu hlutfé í Frumkvöðlasetri Austurlands og hvað aðrir hluthafar hafi gert í þeim efnum.
Hjalti greindi frá stöðu mála og fjallaði um mikilvægt starfs Frumkvöðlaseturs. Hann sagði að ferli væri hafið til að tryggja setrinu fjármögnun til framtíðar. Þá fagnaði hann því að Hafnarskóli skuli vera útnefndur nýsköpunarskóli ársins og óskaði starfsmönnum og nemendum til hamingju með árangurinn.
Ásgrímur vakti athygli á nýjum flugrekstraraðila og nýjum aðila í fólksflutningum á sérleyfum á Suðurlandi. Sagði hann nauðsynlegt að fylgjast þurfi vel með að þau verk gangi vel fyrir sig.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 354. fundur þriðjudaginn 31. október 2006
· Félagsmálaráð 153. fundur 24. október 2006.
· Húsnæðisnefnd 71. fundur 24. október 2006.
· Æskulýðs og tómstundaráð 83. fundur 23. október 2006.
Björn Ingi ræddi bréf frá Elvari Unnsteinssyni og Hauki Sveinbjörnssyni um ferðaþjónustu á Suðurfjörum. Fagnaði hann þessu framtaki og spurði hvað bæjarstjórn muni gera í þessu máli.
Reynir fór yfir málið. Sagði hann bæjarráð hafa tekið mjög jákvætt undir þetta mál.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar, 107. fundur 5. október 2006, fundargerð áður samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2007 ? fyrri umræða
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði. Helstu niðurstöðutölur við fyrri umræðu eru þessar:
A-hluti:
Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 902,1 m.kr. Rekstur málaflokka eru áætlaður 769,2 m.kr. Gjöld vegna eignasjóðs og þjónustustöðvar eru áætluð 114,5 m.kr. Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því afgangur um 18,3 m.kr. Handbært fé frá rekstri 121 m.kr., fjárfestingar 350 m.kr., tekin ný langtímalán 250 mkr., afborganir langtímalána 97,5 m.kr. og handbært fé í árslok 27,7 m.kr.
B-hluti:
Hornafjarðarhöfn: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 73,6 m.kr. en rekstrargjöld 60,3 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði því um 13.3 m.kr. Fjármagnsgjöld eru 15,3 m.kr. Gjöld umfram tekjur eru því um 2 m.kr. Handbært fé frá rekstri 10,4 m.kr., fjárfestingar 40 m.kr., tekin ný langtímalán 38 mkr., afborganir langtímalána 8 m.kr. og handbært fé í árslok 0,7 m.kr.
Vatnsveita/Fráveita: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 53.5 m.kr., rekstrargjöld 21,1m.kr. fjármagnsgjöld eru 10,8 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði um 21,5 m.kr. Handbært fé frá rekstri 32,6 m.kr. og fjárfestingar 4 m.kr.
Leiguíbúðir: Gert er ráð fyrir að tekjur verði um 27 m.kr. en rekstrargjöld um 13,3 m.kr. fjármagnsgjöld eru 21,0 m.kr. gjöld umfram tekjur verði um 7,4 m.kr. Handbært fé frá rekstri 6,9 m.kr. og afborganir langtímalána 8,7 m.kr.
Fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands verður tekin fyrir við aðra umræðu í bæjarstjórn.
Björn Ingi fagnaði að leikskólagjöld muni ekki hækka í krónutölum. Hann gerði athugsemdir við 15 millj. í launabreytingar Óskaði eftir nánari flokkun á þeirri upphæð. Þá sagðist hann sakna þess að meirihlutinn hafi ekki komið fram með beinagrind að framkvæmdaáætlun.
Reynir sagði kostnað og sundurliðun vegna framkvæmda árið 2007 ekki liggja fyrir. Sagðist hann líta svo á að stærsti hluti framkvæmdafjár fari til byggingar sundlaugar, þá til annarra íþróttamannvirkja og einnig eitthvað til að endurbæta tjaldstæði, meðal annars vegna mikils gestafjölda sem væntanlegur er á fyrirhugað ungmennalandsmót. Þá benti Reynir á að 150 millj. króna framkvæmdafé þessa árs hafi ekki verið sundurliðað í fjárhagsáætlun 2006. Sagðist þó skilja óskir um sundurliðun.
Ásgrímur lýsti ánægju með áætlunina. Sagði hann starfsfólk muni eiga heiður skilinn standist þessar áætlanir allar. Sagði hann þetta vera vel rekið bæjarfélag. Hafði þó ákveðnar áhyggjur af afkomu hafnarinnar.
Hjalti ræddi launabreytingalykil og sagði að ákveðið hafi verið að hafa hann heldur hærri en venjulega, einkum vegna mikils launaskriðs á árinu 2006. Hann sagði hins vegar að fara þurfi yfir hann á milli umræðna, meðal annars vegna nýlegra samninga.
Forseti bar upp eftirafandi tillögu að álagningarreglum 2007.
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu að álagningarreglum fyrir árið 2007:
Útsvar 13,03%
Fasteignaskattur
íbúðarhúsnæði 0,50%
opinberar byggingar 0,88%
atvinnuhúsnæði 1,62%
Lóðarleiga
íbúðarlóðir (af lóðarmati) 1,00%
iðnaðarlóðir (af lóðarmati) 1,00%
aðrar lóðir (af lóðarmati) 1,00%
Holræsagjald 0,30%
Vatnsgjöld 0,18%
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða
Forseti bar upp tillögu um að vísa fjárhagsáætlun 2007 til seinni umræðu.
Samþykkt samhljóða
3. Brunavarnaáætlun sveitarfélagsins
Hjalti fagnaði að brunavarnaráætlun hafi verið unnin fyrir sveitarfélagið og fylgdi henni úr hlaði. Sagði hann að þetta sé mikilvæg stefnumótun fyrir brunavarnir en lagði áherslu á að margt sem stefnt væri að yrði að taka sérstakar ákvarðanir um, t.d. hvað varðar kaup á búnaði. Að því loknu lagði hann til að brunvarnaráætlun yrði samþykkt.
Forseti bar upp brunavarnaáætlunina til atkvæða.
Samþykkt samhljóða
4. Tillaga Vegagerðarinnar að matsáætlun hringvegar um Hornafjarðarfljót vísað til bæjarstjórnar frá bæjarráði 31.10.06
Reynir las upp eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur sem fyrr áherslu á að valin verði leið 3 samkvæmt fyrirliggjandi tillögum að vegstæðum. Jafnframt leggur bæjarstjórn áherslu á að stærð brúa sé þannig að þær þrengi ekki vatnsföll eða hafi með öðrum hætti áhrif á hæð grunnvatns innan brúa og verði frekar hannaðar í yfir- en undirstærð. Ástæða þessa er að hækki grunnvatn við fyrirhugaðar framkvæmdir mun það hafa neikvæð áhrif á þann atvinnurekstur sem er innan (fyrirhugaðra) veglína 2 og 3.
Björn Ingi fagnaði þessari bókun og sagðist taka undir hana. Guðrún sagðist taka einnig taka undir þessa bókun og minnti á að 10 ár eru liðin frá hamfarahlaupi á Skeiðarársandi.
Forseti bar upp tillöguna til atkvæða.
Samþykkt samhljóða
5. Breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Hjalti gerði grein fyrir málavöxtum og sagði m.a. að til að viðhalda núverandi samgöngukerfi þjóðvegarins í sveitarfélaginu verði að beisla síbreytilegan farveg jökuláa á þessum svæðum. Nauðsynlegt sé því að vinna grjót til viðhalds og endurbóta á leiðigörðum jökulvatna og námur vegna þessa verða að vera innan skynsamlegra fjarlægðar frá framkvæmdasvæði. Umrætt námusvæði, ásamt námu við Virkisá, er hugsað til að fullnægja þessari þörf fyrir austurhluta Skeiðarársands og nauðsynlegum leiðigörðum rétt austan hans við Skaftafellsá, Svínafellsá, Virkisá og Kotá.
Framkvæmdin mun hafa sjónræn áhrif á umhverfi sitt. Til að lágmarka þau áhrif sem mest er brýnt að efnistöku og öðrum framkvæmdum við námu sé hagað þannig að ásýnd landsins spillist sem minnst og skapi þess heldur aukna möguleika fyrir ferðamenn til að nálgast og njóta einstæðrar náttúru þessa svæðis. Í máli Hjalta kom fram að breytingin hafi verið samþykkt á fundi byggingar- og skipulagsnefndar þann 6. nóvember og í bæjarráði þann 7. nóvember. Að lokum lagði Hjalti til að þessi breyting á aðalskipulagi verði samþykkt.
Guðrún sagðist styðja þessi bókun og minnti á að hringvegurinn á Skeiðarársandi hafi lokast fyrir réttum tíu árum um nokkurra vikna skeið vegna hlaups í Skeiðará.
Forseti bar upp tillögu um breytingu á aðalskipulagi til atkvæða.
Tillagan samþykkt samhljóða
6. Fyrirspurnir
Engar
Fundi slitið kl. 18: 30


