Fundargerð bæjarrstjórnar 135
135. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 2. október 2008, kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, varaforseti bæjarstjórnar, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Gunnar Ingi Valgeirsson, Guðrún Ingimundardóttir, Björn Ingi Jónsson og Björk Pálsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.
Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar, 432. fundur, 11. september 2008.
Hjalti vakti athygli á fundi sem haldinn var um fjölorkuhring með iðnaðarráðuneytinu og nokkrum sveitarfélögum, þar á meðal Sveitarfélaginu Hornafirði. Taldi rétt að sveitarfélagið tæki þátt í þessu verkefni frá upphafi. Hjalti gerði gein fyrir fundi með fjárlaganefnd. Sagðist hann vera hóflega bjartsýnn á að öll okkar áhersluatriði fáist samþykkt með fjárlögum. Þá ræddi hann knattspyrnuhús og aðgerðir sem vinna þarf að áður en af byggingu verður.
Björk ræddi rekstrarstöðu bæjarsjóðs. Sagði hana góða og að það væri gott eins og nú áraði. Þá lagði hún áherslu á þjónustusamning um heilbrigðisþjónustu.
Sigurlaug ræddi fjölorkuhring og sagðist stolt yfir því að okkar sveitarfélagi hafi verið boðin þar þátttaka. Sigurlaug spurði um vinnu við heimasíðu sveitarfélagsins sem hún sagði vera langt á eftir áætlun.
Björk spurði um leigu á heimavistarhluta Nesjaskóla og malarnám í „Friðsæld”.
Hjalti sagðist taka undir með Björk að ýta þurfi undir framkvæmdir með fjárhagsáætlun næsta árs og benti á atriði sem hníga í þá átt. Hann greindi frá stöðunni vegna þjónustusamningsins. Hjalti sagði það óheppilegt hversu dregist hafi að klára heimasíðuna og skýrði þann drátt sem orðið hefur. Hann sagði að búið sé að gera samning um heimavistarhluta Nesaskóla (um 650 fm) við eigendur Hótels Jökuls sem og um kennsluhúsnæðið o.fl. atriði sem að húsnæðinu snúa.
Björk ítrekaði spurningu um „Friðsældina” og greindi Hjalti frá stöðunni í því máli, samskipti við landbúnaðarráðuneytið og Vegagerðina um það mál. Í svari hans kom m.a. fram að Vegagerðin sé tilbúin að hafa umsjón með námunni en ekki sjá um að selja úr henni efni. Spurning sé enn um framhald málsins.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar, 433. fundur, 22. september 2008
Guðrún ræddi um útgáfu á riti um ævi og störf Svavars Guðnasonar. Fagnaði hún þeim áætlunum og lagði áherslu á hans merka listamannsferil.
Sigurlaug ræddi um stjórn fólksvangsins í Óslandi, sbr. fundargerð umhverfisnefndar nr. 80 Einkum ræddi hún um stjórn hans og þeirri tæknivinnu þyrfti að ljúka. Einnig ræddi hún hugsanleg tengsl á milli Vatnajökulsþjóðgarðs og fólksvangs í Óslandi sem hún taldi vel koma til greina enda margt sameiginlegt. Þá ræddi hún skilju vegna sláturúrgangs, sbr. lið 8 í fundargerð bæjarráðs. Með þessu væri verið að minnka urðun á lífrænum sláturúrgangi. Þetta leiddi einnig til þess að hugmyndir um jarðgerðarvél þyrfti að endurskoða þegar þessi úrgangur yrði ekki lengur til staðar. Einnig ræddi Sigurlaug um frágang á fráveitumálum og hugsanlegum breytingum frá fyrri hugmyndum. Þá vitnaði hún til fundar starfsmanns með íbúum á Mýrum vegna félagsheimilisins Holts. Sagði hún félagsheimilin skipta samfélög miklu máli. Í þessu sambandi ræddi hún um átthagastofur og áhuga á að fá hingað fyrirlesara um það mál. Sigurlaug spurði um stöðu mála vegna vegar yfir Hornafjarðarfljót. Lagði áherslu á styttingu leiðar á milli dreifbýlis og þéttbýlis sem skipti ekki litlu máli vegna hins háa orkuverðs o.fl. þátta. Þá sagði Sigurlaug nýlega hafi verið tekinn grunnur að nýju einbýlishúsi í Suðursveit sem hún sagði jákvæða vísbendingu um áhuga ungs fólks á að setjast að í sveit. Einnig ræddi Sigurlaug um reglur um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði vegna aksturs með börn úr dreifbýli í leikskóla í þéttbýlinu og brunavarnir í sveitum, sbr. bréf frá Búnaðarsambandi A-Skaft. sem var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs.
Björn Ingi ræddi hraðatakmarkandi aðgerðir í þéttbýlinu og skýrslu þar að lútandi. Hann sagði óskandi að einhverjar aðgerðir fari að sjást til að draga úr hraðanum sem væri of mikill hér í þéttbýlinu. Benti m.a. á hraðakstur þar sem börn bíða eftir skólabíl á Höfn að morgni dags.
Björk fagnaði útgáfu á verki um ævi Svavars Guðnasonar og verk hans. Hún fagnaði hugmyndum um hraðatakmarkandi aðgerðir og spurðist fyrir um hvort ekki hafi verið kannaður möguleiki á hringtorgum. Þá spurðist hún fyrir um hugmyndir um vatnsútflutning og úttekt á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Einnig ræddi hún Holt á Mýrum, spurði hvort ekki væri hægt að samnýta Holt sem félagsheimili og vinnustofu fyrir sambýlið í Hólabrekku.
Hjalti tók undir orð um hraðatakmarakandi aðgerðir í þéttbýlinu. Taka þurfi skref í samræmi við skýrsluna. Þá ræddi hann hugmyndir um samvinnu jöklasýningar og þjóðgarðsins. Hann ræddi vatnsútflutning og möguleika á honum og sagði að m.a. væri von á erlendum aðilum á næstunni vegna þess máls. Hann svaraði spurningum um úttekt á stjórnsýslu sveitarfélagsins og helstu áhersluþáttum þeirrar úttektar. Lagði áherslu á hlutverk ráðhússins í þjónustu við alla íbúa. Hann greindi frá hverjir vinna eiga verkið og kostnaði vegna þess. Hjalti sagði fátt nýtt að frétta af vegi yfir Hornafjarðarfljót, ekki væri enn ljóst hvaða leið Vegagerðin muni leggja til.
Árni ræddi hraðatakmarkandi aðgerðir í þéttbýlinu og skýrslu frá verkfræðiskrifstofunni Mannviti. Hann sagðist taka undir það að gott væri að sjá verkin tala en lagði um leið áherslu á þá grunnvinnu sem farið hefur fram, hún væri nauðsynleg. Þá ræddi Árni þjónustusamning um heilbrigðisþjónustu og stöðu hans. Ræddi hann fjárhagsstöðu HSSA í samanburði við margar aðrar heilbrigðisstofnanir, sagði hana mun betri en margra annarra sambærilegra stofnana og benti á ávinning þessa rekstrar fyrir íbúa sveitarfélagsins og sagði mikilvægt að bæjarfulltrúar héldu þeim ávinningi á lofti. Árni fagnaði skýrslu um möguleika á vatnsútflutningi og sagði sveitarfélagið vera að standa vaktina í því máli þó ekki muni það fara út í útflutning á vatni, fremur hvetja einkaaðila til þess. Árni sagðist taka undir hvert orð Sigurlaugar um nýjan Fljótaveg. Sagði Árni að við eigum að halda okkar striki af hörku, ekki gefa tommu eftir í því. Þingmenn kjördæmisins þurfi að vinna með okkur að því að klára þetta mál.
Gunnar Ingi ræddi hraðakstur í þéttbýlinu sem hann sagði mikinn. Benti hann á reglur (lög) þar að lútandi. Hann taldi 35 km ætti að vera hámarkshraða.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar, 434. fundur, 29. september 2008 – fundargerð send út í tölvupósti að fundi loknum
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 133. fundur 4. september 2008 og 134. fundur, 16. september 2008, fundargerðir áður samþykktar
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2008
Bæjarstjóri fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 sem bæjarráð vísaði til afgreiðslu í bæjarstjórn. Helstu breytingar á fjárhagsáætluninni eru þær að skatttekjur í heild hækka um 102,3 m.kr., fyrst og fremst vegna hækkunar og framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Heildarupphæð skatttekna er því um 1.142 m.kr. og tekjur samstæðunnar tæplega 1.569 m.kr.
Útgjöldin til rekstrar aukast hins vegar um 69 m.kr. og munar þar mest um hækkanir á launum um 22 m.kr., Atvinnu og rannsóknasjóður vegna sölu á Nesjaskóla 20 m.kr. og vegna verðlagshækkana. Heildarupphæð gjalda samstæðunnar án fjármagnsliða er um 1.241 m.kr. en fjármagnsliðir eru um 82,8 m.kr. Rekstrarafgangur er jákvæður um 245,4 m.kr. sem er um 118.5 m.kr. betri afkoma en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Fjárfestingar lækka um 52,5 m.kr. m.a. vegna þess að bygging knattspyrnuhúss er skemur komin en áætlað var og sölu á Nesjaskóla. Handbært fé í ársbyrjun er áætlað um 476,3 m.kr. sem er um 115,5 m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir og handbært fé í árslok er áætlað um 346,7 m.kr. sem er um 299 m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Endurskoðuð fjárhagsáætlun ber það með sér að fjárhagur sveitarfélagsins er traustur sagði Hjalti. Sagði jafnframt að gæta þurfi vel að fjárhag sveitarfélagsins á þeim erfiðu tímun sem nú eru.
Endurskoðuð fjárhagsáætlun borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
3. Erindisbréf og kosning í starfshóp um endurskoðun á aðalskipulagi
Hjalti fór yfir málið og greindi frá helstu þáttum erindisbréfsins.
Erindisbréf starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi borið undir atkvæði. Erindisbréfið samþykkt með sex atkvæðum, einn sat hjá.
Tillaga um fulltrúa í starfshóp um endurskoðun á aðalskipulagi:
Árni Rúnar Þorvaldsson, fulltrúi Samfylkingar
Sigurlaug Gissurardóttir, fulltrúi Framsóknarflokks
Halldóra B. Jónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks
Tillaga um skipan starfshóps borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
4. Fyrirspurnir
Engar borist.
Fundi slitið kl. 17:40


