Fundargerð Bæjarstjórnar 66
66. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 2. október 2003, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Björn E. Traustason, Ármann Guðmundsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson og Eyjólfur Guðmundsson. Einnig Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
Bæjarráð Hornafjarðar 221. fundur fimmtudaginn. 27. ágúst 2003.
• Skólanefnd Hornafjarðar 52. fundur fimmtudaginn 20. ágúst 2003.
• Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði, 9. fundur þriðjudaginn 15. ágúst 2003.
Ólafur spurði um mötuneytismál Hafnar- og Heppuskóla. Hann spurði einnig um handmenntastofur í Vöruhúsi. Bæjarstjóri sagði að miðað við forsendur sem seljandi lagði upp með í byrjun skólaárs hefði ekki verið næg eftirspurn eftir matarbökkum. Verið sé að endurskoða þær forsendur og lagðar verða fram nýjar tillögur. Bæjarstjóri sagði viðræður í gangi við stjórnendur KASK um leiguverð vegna handmenntastofa og sagði fullan vilja hjá báðum aðilum að samningar náist. Halldóra ræddi mötuneytismál og taldi æskilegt að framleiðsla matarbakkanna verði í höndum einkaaðila.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 222. fundur fimmtudaginn 18. september 2003.
• Almannavarnanefnd Hornafjarðar 23. fundur 9. september 2003.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 96. fundur26. ágúst og 97. fundur 9. september 2003.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð 43. fundur 27. ágúst 2003.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 49. fundur 10. september 2003.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 52. fundur 25. ágúst 2003.
• Heilbrigðisnefnd Austurlands 38. fundur 9. september 2003 til kynningar
Reynir spurðist fyrir um aðsókn að söfnum sveitarfélagsins. Einnig spurðist hann fyrir um samning Menningarmálastöðvar við Lionsklúbbana um aðgang að Pakkhúsi. Bæjarstjóri fór yfir tölur um aðgang að söfnum. Hann sagði samninginn við Lionsmenn vera á þann veg að þeir greiða vissa upphæð á mánuði ( leigja húsið á tímabilinu september – april) en sjá jafnframt um yfirsetu á þeim sýningum sem eru í húsinu á leigutímanum.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 223. fundur fimmtudaginn. 24. september 2003.
• Skólanefnd Hornafjarðar 53. fundur 17. september 2003.
Halldóra ræddi um úttekt á leikskólum sveitarfélagsins sem gerð var af skólaskrifstofu. Þar kemur fram fækkun barna í árgöngum og að rými er fyrir fleiri börn í leikskólunum á Höfn. Þar er einnig lagt til að leikskólanum Óla Priki verði lokað. Halldóra ræddi fund í Sindrabæ sem haldinn var 1. Október. Þar var rætt um framtíð Sindrabæjar og hvernig forsvarsmenn hinna ýmsu menningarhópa sjá fyrir sér nýtingu hússins. Halldóra fagnaði því að menningar- og félagsstarf í sveitarfélaginu sé í miklum blóma og velti fyrir sér hvernig best er hægt að styðja við það.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar, 65. fundur fimmtudaginn 28. ágúst 2003 áður samþykkt.
2. Fyrirspurnir
Engar.
Fundi slitið kl. 17:00


