Fundargerð bæjarstjórnar 165
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 3. febrúar 2011, kl. 16.00 í Nýheimum.Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Valdemar Einarsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson.
1. 200811043 – Fundargerðir
· Fundargerð bæjarráðs 529. Fundur (Upptaka)
Árni Rúnar ræddi um sorpbrennslustöðvar, spurðist hann fyrir um hvort sýnatökur hafi farið fram hjá sorpbrennslunni í Öræfum.
Hjalti gerði grein fyrir því að mælingar hafi farið fram og að niðurstöðu þeirra mælinga er að vænta eftir fjórar til sex vikur. Gerði hann jafnframt grein fyrir því að framkvæmdar verði mælingar aftur í vor þegar ofninn er í fullri virkni.
Árni þakkaði fyrir svörin.
Fundargerð samþykkt samhljóða
· Fundargerð bæjarráðs 530. fundur (Upptaka)
Valdemar ræddi um þá biðlista sem nú eru á báðum leikskólum, taldi hann brýnt að brugðist verði við þeim eins fljótt og kostur er. Valdemar fjallaði einnig um 8. lið fundargerðarinnar um hátíðarhöld í sveitarfélaginu.
Ásgerður ræddi um leikskólamál og gerði grein fyrir því að unnið er að úrlausnum á biðlistum leikskóla. Jafnframt greindi hún frá því að flest öll börn á biðlistum væru með gæslu hjá dagmæðrum. Ásgerður fjallaði einnig um málefni Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólann í Hofgarði.
Árni Rúnar ræddi um 5. lið fundargerðarinnar um deildarstjóra, spurðist hann fyrir um hvort aukinn kostnaður fylgi annarri deildarstjórastöðu. Árni Rúnar fjallaði um fyrri ákvörðun bæjarstjórnar um núverandi skipan í skólamálum, taldi hann mikilvægt að ekki verði gerðar breytingar á núverandi skipan fyrr en meiri reynsla fáist á núverandi skipan í Grunnskóla Hornafjarðar.
Árni Rúnar fjallaði einnig um leikskólamál, spurðist hann fyrir um hvar vinnu við endurskoðun leikskólamála.
Hjalti Þór fjallaði um hátíðir í Sveitarfélaginu Hornafirði, gerði hann grein fyrir samskiptum við Hornfirska Skemmtifélagið og hátíðina Norðurljósablús. Gerði hann einnig grein fyrir málefni leikskólanna og þeirri vinnu sem nú fer fram um endurskoðun leikskólamála. Hjalti gerði grein fyrir þeim kostnaði sem fylgir annarri deildarstjórastöðu.
Ásgerður ræddi um biðlista á leikskólum og þá vinnu sem nú er í gangi til að bregðast við biðlitunum, gerði hún grein fyrir reglum er snúa að inntökuskilyrðum.
Árni Rúnar þakkaði svörin og spurðist nánar fyrir um kostnað sem fylgir annarri deildarstjórastöðu. Árni Rúnar ræddi aftur um leikskólamál, fjallaði hann um mikilvægi þess að halda vinnu við endurskoðun leikskólamála áfram. Árni Rúnar spurðist fyrir um skilgreiningu á gömlu barngildunum í leikskólum.
Hjalti gerði grein fyrir fundi sínum með skólastjórum Grunnskóla Hornafjarðar um deildastjórastöður, jafnframt gerði hann grein fyrir hagræðingu og kostnaði sem önnur deildarstjóra felur í sér. Hjalti gerði grein fyrir þeirri vinnu sem nú fer fram í leikskólamálum, biðlistar væru fyrst og fremst vegna húsnæðisvanda leikskólanna.
Árni Rúnar fjallaði um endurskoðun leikskólamála og þá spurningalista sem sendir voru út til foreldra og kennara.
Guðrún Ása ræddi um kirkjugarðsmál og mikilvægi þess að málið verði kynnt þar sem málefnið snerti alla íbúa sveitarfélagsins.
Hjalti fagnaði umræðu um kirkjugarðsmál og benti á mikilvægi þess að málinu verði haldið áfram að festu. Gerði hann einnig grein fyrir fyrirkomulagi þeirrar vinnu sem nú fer fram á vegum skólaskrifsstofu er varðar spurningalista.
Árni fjallaði stuttlega um leikskólamál.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
· Fundargerð bæjarráðs 531. fundur (Upptaka)
Valdemar ræddi um 7. lið er varðar reglur um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundarstarfi fjarri heimili. Fagnaði hann umræðum um þessi mál og spurðist hann fyrir um kostnað sem fylgir málinu.
Hjalti gerði grein fyrir þeim kostnaði sem áætlað er að falli til vegna þessara reglna.
Árni Rúnar ræddi um sóknaráætlun 20 20 fyrir Ísland. Taldi hann það mikilvægt fyrir bæjarstjórn að huga að sóknaráætlun fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð í anda sóknaráætlun fyrir Ísland.
Árni lagði fram eftirfarandi tillögu um sóknaráætlun 20 20 fyrir Ísland:
Bæjarstjórn Hornafjarðar felur bæjarráði að taka Sóknaráætlunina Ísland 2020 til efnislegrar skoðunar og meðferðar. Í framhaldi af þeirri skoðun skal bæjarráð leggja mat á það hvort sóknarfæri felist í áætluninni fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð og meti kosti þess að sveitarfélagið hefji undirbúning að gerð sóknaráætlunar fyrir okkar svæði á þeim grunni sem lagður er með nýsamþykktri Sóknaráætlun fyrir Ísland 2020. Bæjarráð skal viðhafa eins víðtækt samráð við hagsmunaaðila og íbúa og því er unnt. Mikilvægt er að ákvarðanir verði teknar með það í huga mögulegt verði að kynna hugmyndir sveitarfélagsins fyrir Alþingi í tengslum við næstu fjárlagagerð.
Árni ræddi um fyrirhugaðar endurbætur og breytingar á Heppuskóla, fjallaði hann um mikilvægi þess að endurbæturnar taki mið af heildarskipan Grunnskóla Hornafjarðar. Spurði hann hvort búið væri að taka ákvörðun um hvort 7. bekkur verði í Heppuskóla að ári.
Hjalti fagnaði framkominni tillögu Árna Rúnars og ræddi sóknaráætlun 20 20 fyrir Ísland, taldi hann mikilvægt að skoða sóknaráætlun fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð í samræmi við sóknaráætlunina 20 20. Hjalti ræddi fyrirhugaðar endurbætur og breytingar á Heppuskóla og mikilvægi þess að horfa til langs tíma í þeim breytingum. Hjalti svaraði fyrirspurn um hvort búið væri að taka ákvörðun um framtíðar bekkjaskipan í Heppuskóla.
Ásgrímur ræddi um sóknaráætlunina 20 20 og fjallaði sérstaklega um fyrirhugað íbúaþing í tengslum við endurskoðun aðalskipulags.
Valdemar spurðist fyrir um nýtingu á tómstundakortum og fjallaði um hugmyndir að ráðstöfun tómstundarkorta.
Hjalti sagðist ekki geta svarað Valdemar um tómstundakort en ætlaði að nálgast upplýsingar um málið.
Árni fjallaði um sóknaráætlunina og þakkaði fyrir góðar umræður. Fjallaði hann um endurbætur á Heppuskóla og mikilvægi þess að skólanefnd fái að fjalla um framtíðar bekkjaskipan í Grunnskóla Hornafjarðar.
Ásgerður fjallaði um endurbætur á Heppuskóla og bar upp tillögu Árna Rúnars upp til atkvæða.
Var hún samþykkt samhljóða.
Ásgerður bar fundargerðina upp til samþykktar.
Fundargerð samþykkt
· Fundargerð 164. Fundar Bæjarstjórnar Hornafjarðar áður samþykkt
Til kynningar
2. 201002029 – Breyting á deiliskipulagi miðbæjarsvæði – reitur A seinni umræða. (upptaka)
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir því að markmið með skipulagstillögunni er að móta ramma um byggð sem styrkir götumynd Hafnarbrautar og heildarbrag miðsvæðis á Höfn og fyllir í hálfkláraða götumyndir, og verður aðlaðandi umhverfi. Skipulaginu er ætlað að stuðla að uppbyggingu atvinnu- og þjónustuhúsnæðis í miðbæ Hafnar. Áhersla er lögð á að nýbyggingar, og viðbyggingar og breytingar á eldri húsum lagi sig að staðháttum og byggðinni sem fyrir er. Einnig að framkvæmdir geti farið fram í áföngum eftir þörfum lóðarhafa, og smám saman fyllt í þá heildarmynd sem skipulagið stefnir að.
Lagði hann til að málinu verði vísað til Skipulagsstofnunar til meðferðar og samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
3. 201101040 – Gjaldskrá sorpgjalda 2011 (Upptaka)
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og gerði grein fyrir helstu breytingum á nýrri gjaldskrá. Gjaldskráin byggir á samþykkt nr. 104/2000 um sorphirðu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Gjaldsskráin stuðlar að gegnsæi í gjaldtöku til einstaklinga og fyrirtækja og er hvetjandi fyrir frekari endurvinnslu úrgangs sem skilaði sér í lágmörkun kostnaðar við málaflokkinn fyrir alla aðila. Heimilum er áfram gert kleift að velja á milli tveggja mismunandi stærða sorpíláta. Fyrirtæki greiða fast umsýslu- og rekstrargjald sorpstöðvar og greiða eftir magni óflokkaðs úrgangs sem fellur til við rekstur. Fyrirtækjum er hvött til að koma með án kostnaðar ákveðna úrgangsflokka í gámaport við Áhaldahús og þannig gætu þau dregið úr kostnaði við urðun úrgangs. Þannig er markvist stuðlað að því að draga úr magni úrgangs sem fer til urðunar og líftími urðunarstaðar lengist sem er mikilvægt fyrir rekstur málaflokksins til lengri tíma litið
Samþykkt samhljóða
4. 200901107 – Fyrirspurnir – bæjarstjórn
Þær hafa engar borist.
Fundi slitið kl. 17.40


