Reglur vegna starfsmannaráðninga hjá Sveitarfélaginu Hornafirði
1. gr.
Markmið
Markmið með þessum reglum er að tryggja góða stjórnsýsluhætti við ráðningar hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.
2. gr.
Auglýsingar
Stöður sem losna skulu auglýstar. Markmið með auglýsingum er að þannig fái allir möguleika á að sækja um laus störf hjá sveitarfélaginu. Í auglýsingum þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram:
1. Hver veiti nánari upplýsingar.
2. Hvert umsókn eigi að berast.
3. Hvort sækja skuli um á sérstökum eyðublöðum.
4. Umsóknarfrestur.
5. Hvaða starf/starfssvið um er að ræða.
6. Starfshlutfall.
7. Hvaða starfskjör eru í boði.
3. gr.
Málsmeðferð
Við málsmeðferð skal hafa til hliðsjónar sveitarstjórnarlög nr. 45/1998, stjórnsýslulög nr. 37/1993, samþykkt sveitarfélagsins og starfsmannastefnu sveitarfélagsins.
4. gr.
Málshraði
Ákvörðun um veitingu starfs skal taka svo fljótt sem unnt er eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Ef ljóst er að ákvörðun dregst ber að tilkynna umsækjendum um ástæður tafanna og hvenær niðurstöðu sé að vænta.
5. gr.
Rannsóknarskylda
Áður en ákvörðun er tekin ber þeim sem veitir starfið að safna sama nauðsynlegum upplýsingum um alla umsækjendur og taka ákvörðun á grundvelli þeirra.
6. gr.
Jafnræði
Við ákvarðanatöku um veitingu starfs þarf ætíð að gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti. Við mat á umsækjendum er mikilvægt að horfa til þátta eins og þekkingar, reynslu, hæfni og menntunar. Sá sem veitir starf þarf að ákveða þau sjónarmið eða ástæður sem byggt verði á við veitingu starfs og að þær ástæður séu málefnanlegar. Ef tveir eða fleiri umsækjendur teljist jafnhæfir geta sjónarmið um jafna stöðu kvenna og karla, sbr. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000, fengið aukið vægi. Þá ber að velja þann sem er af því kyni sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein.
7. gr.
Tilkynning ákvörðunar
Öllum umsækjendum skal svarað skriflega þar sem ákvörðun um veitingu starfs er tilkynnt.
8. gr.
Rökstuðningur
Aðili máls getur óskað skriflegs rökstuðnings um ráðningu í starfið hafi slíkur rökstuðningur ekki fylgt ákvörðuninni þegar hún var tilkynnt. Samkvæmt þessum reglum er ekki nauðsynlegt að láta rökstuðning fyrir ákvörðun fylgja með þegar tilkynnt er um ákvörðun um veitingu starfs. Hins vegar er sjálfsagt að verða við beiðni um rökstuðning ef ósk berst um það.
9. gr.
Ráðning
Gengið skal frá öllum ráðningum með formlegum hætti í ráðningarsamningi. Þeim umsækjenda sem veitt er starfið skal afhent starfslýsing.
Samþykkt í bæjarráði 22. september 2005


