Stefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar í íþrótta-æskulýðs og tómstundamálum
Samþykkt í skóla,-íþrótta,- tómstundanefnd Hornafjarðar 21.11. 2012
Stefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar í íþrótta- æskulýðs-, og tómstundamálum
Inngangur
Hverju sveitarfélagi er mikilvægt að hafa fjölbreytt val í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum. Þátttaka barna og ungmenna í slíku starfi hefur óumdeilt forvarnagildi. Skýr stefna í málaflokknum tryggir að allir sem starfa innan hans stefni í sömu átt með það að markmiði að efla íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf. Stefnan er einnig mikilvæg forsenda þess að frjáls félög og félagasamtök geti sinnt hlutverki sínu vel. Með stefnu þessari er ætlunin að treysta grunninn og móta framtíðarsýn í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Ferlið
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hélt utan um vinnuna við gerð og mótun stefnunnar. Starfsmenn nefndarinnar við stefnumótunina voru forstöðumaður íþróttamannvirkja, tómstundafulltrúi og framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs. Fyrsta verkefni nefndarinnar og starfsmanna var að boða til íbúafundar. Í undirbúningi fundarins var lögð rík áhersla á að boða alla helstu hagsmunaaðila í málaflokknum á fundinn með það að markmiði að fá fram hugmyndir þeirra og skoðanir á fyrstu stigum.
Á íbúafundinum komu fram margar góðar ábendingar og hugmyndir sem starfsmenn unnu úr og kynntu fyrir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. Út frá hugmyndum nefndarinnar og ábendingum af íbúafundinum voru unnin drög að stefnu sveitarfélagsins í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum. Drögin voru send nefndum sveitarfélagsins og hagsmunaaðilum til umsagnar, kynnt í staðarmiðlum og aðgengileg öllum á veraldarvefnum þar sem íbúum gafst kostur á að gera athugasemdir.
Að umsagnarferlinu loknu endurskoðaði skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd stefnudrögin og vísaði þeim í kjölfarið sem tillögu að stefnu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð í íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Stefnunni er skipt upp í fjóra meginkafla;
· Íþróttastarf barna og unglinga
· Keppnis- og afreksíþróttir
· Almenningsíþróttir
· Æskulýðs- og tómstundastarf.
Í kjölfar stefnunnar verður unnin aðgerðaáætlun um framkvæmd hennar. Stefnt er að því að endurskoða stefnuna á fjögurra ára fresti.
Íþróttastarf barna og unglinga
Stefna
Lögð er áhersla á fjölbreytt framboð íþróttagreina í Sveitarfélaginu Hornafirði, að nýjar íþróttagreinar verði kynntar og hlúð að sjálfboðastarfi foreldra. Stefnt er að góðu samstarfi við foreldra og íþróttafélög. Leiðarljós allrar íþróttaiðkunar skal byggt á mannrækt og heilsueflingu.
Markmið
Öll börn og unglingar skulu hafa tækifæri til að taka þátt í íþróttastarfi.
Leiðir
- Sveitarfélagið styrki félagasamtök sem sinna þessu starfi.
- Börn á grunnskólaaldri eigi greiðan aðgang að tómstundakorti til að greiða niður æfingagjöld.
- Börn á grunnskólaaldri í dreifbýli njóti styrks til að vega upp á móti ferðakostnaði þeirra vegna íþróttaiðkunar innan sveitarfélagsins.
- Tryggt verði eins og kostur er að þjálfarar hafi reynslu og menntun til að sinna þjálfun barna og ungmenna. Íþróttafélögin setji sér heilsteypta stefnu um menntun þjálfara.
Íþróttaskóli verði efldur með það að markmiði að kynna ungum iðkendum sem flestar íþróttagreinar.
- Íþróttafélög nýti sér heimasíðu sveitarfélagsins sem upplýsingamiðil.
Ábyrgð
- Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
- Bæjarráð.
- Íþróttafélög og félagasamtök sem njóta styrkja frá sveitarfélaginu.
Mat
Metið skal með reglulegum hætti hvernig framlög sveitarfélagsins til félaga og félagasamtaka nýtast. Skráð verði menntunarstig þjálfara sem starfa á vegum íþróttafélaga. Árlega skal skilað til sveitarfélagsins skýrslum sem tilgreini þátttöku í einstökum íþróttagreinum. Áframhaldandi styrkur er háður því að skýrslum sé skilað inn í kjölfar aðalfunda félaga.
Keppnis- og afreksíþróttir
Stefna
Stutt verði við einstaklinga og hópa sem taka þátt í afreksíþróttum. Stefnt skal að því að Sveitarfélagið Hornafjörður eigi ávallt afreksfólk í einstaklings- og/eða hópíþróttum.
Markmið
Að sem flestir íþróttamenn geti orðið afreksmenn í sinni íþróttagrein og með því orðið mikilvægar fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur.
Leiðir
- Íþróttafólki verði boðið upp á eins góða aðstöðu til iðkunar og kostur er.
- Menntaðir þjálfarar sinni þjálfun.
- Sveitarfélagið leggi íþróttahreyfingunni til fjármagn með sérstökum samningum.
- Komið verði á samstarfi um afreks- og styrktarsjóð.
- Afreksfólk verði ávallt góðar fyrirmyndir innan sem utan keppnisvallar.
- Íþróttafélög sem njóta styrks frá sveitarfélaginu setji sér siðareglur.
Ábyrgð
- Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
- Bæjarráð.
- Íþróttafélög sem njóta styrkja frá sveitarfélaginu.
Mat
Íþróttafélög sem njóta styrkja frá sveitarfélaginu skili árlega skýrslu í kjölfar aðalfunda um stöðu keppenda í þeim hópíþróttum og einstaklingsíþróttum sem stundaðar eru. Greint skal frá fjölda iðkenda og mat lagt á framfarir þeirra. Tilgreina skal sérstaklega þann hóp íþróttamanna sem þykir skara fram úr í ástundun og árangri. Árangur íþróttafólks verði metinn í samanburði við aðra íþróttamenn og íþróttafélög í landinu. Meta skal nýtingu þess fjármagns sem lagt er til íþróttafélaga.
Almenningsíþróttir
Stefna
Hreyfing er ein mikilvægasta forvörnin til að viðhalda heilsu í nútímaþjóðfélagi. Stefnt skal að því að íbúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar hafi fjölbreytt tækifæri til hreyfingar.
Markmið
Sveitarfélagið Hornafjörður verði í fremstu röð hvað varðar möguleika íbúanna til að stunda alhliða heilsurækt og heilbrigða lífshætti.
Leiðir
- Bætt verði við göngu- og hjólreiðastíga í sveitarfélaginu og séð um viðhald á þeim stígum sem fyrir eru.
- Ávallt liggi fyrir aðgengilegar upplýsingar um möguleika til hreyfingar og íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu.
- Settar verði upp leiðbeiningar við útiþjálfunarstöðvar og þeim fjölgað.
- Skilgreind verði svæði þar sem hundaeigendur mega sleppa hundum sínum lausum. Bent er á að lausagöngubann gildir um hunda í þéttbýli.
- Stutt verði við þau verkefni sem stuðla að hreyfingu og íþróttaiðkun almennings.
- Stutt verði við samtök og hópa sem beita sér fyrir nýbreytni á sviði almenningsíþrótta.
Ábyrgð
- Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
- Bæjarráð.
- Félög og félagasamtök sem njóta styrkja frá sveitarfélaginu.
Mat
Reglulega verði könnuð hreyfing og íþróttaiðkun almennings. Lagt verði mat á nýtingu þess fjármagns sem sveitarfélagið leggur til málaflokksins.
Æskulýðsstarf og tómstundastarf
Stefna
Stefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar er að íbúar hafi ávallt aðgang að fjölbreyttu æskulýðs- og tómstundastarfi.
Markmið
Íbúar sveitarfélagsins eigi kost á uppbyggilegu æskulýðs- og tómstundastarfi.
Leiðir
- Sveitarfélagið reki félagsmiðstöð fyrir ungmenni. Lögð verði áhersla á fjölbreytt og skapandi starf. Sérstök áhersla verði lögð á að ná til þeirra ungmenna sem ekki sækja í íþróttir eða annað skipulagt tómstundastarf.
- Stutt verði við félagasamtök sem sinna tómstundastarfi með fjárframlögum, ráðgjöf og aðgengi að húsnæði fyrir starfsemina.
- Stutt verði við áhugafólk um skapandi starf og listir í sveitarfélaginu með aðgengi að æfinga- og vinnuaðstöðu.
- Stutt verði við einstaklinga og hópa sem hafa hug á að koma á fót nýjungum í æskulýðs- og tómstundastarfi.
Ábyrgð
- Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
- Bæjarráð.
- Félög og félagasamtök sem njóta styrkja frá sveitarfélaginu.
Mat
Félög og félagasamtök sem styrkt eru af sveitarfélaginu skili árlega inn skýrslu um starfsemi sína þar sem m.a. komi fram upplýsingar um fjölda félagsmanna og virkni þeirra í félagsstarfi. Sama á við um félagsmiðstöð sem rekin er af sveitarfélaginu. Áframhaldandi styrkur er háður því að þau skili inn skýrslum í kjölfar aðalfunda.


