Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum
Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum
1.gr.
Sveitarfélagið Hornafjörður greiðir niður daggæslu barna í heimahúsum samkvæmt reglum þessum og að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
a. Foreldrar viðkomandi barns verða að hafa lögheimili í sveitarfélaginu.
b. Dagforeldri ber að hafa leyfi til daggæslu frá félagsmálaráði Hornafjarðar.
c. Að foreldri sé ekki í fæðingarorlofi og fái ekki vistun fyrir barnið á leikskóla.
d. Kvittun frá viðkomandi dagmóður þarf að liggja fyrir undangenginn mánuð.
2. gr
Almenn niðurgreiðsla til foreldra er kr. 35.000,- á mánuði miðað við átta stunda vistun á dag. Hægt er að sækja um viðbótarniðurgreiðslu og þarf þá að skila inn skattframtali og þremur síðustu launaseðlum hvors foreldris.
Viðbótarniðurgreiðsluflokkar frá Sveitarfélaginu Hornafirði:
Tekjur á mánuði Viðbót
0 – 225.734 30%
225.735 – 282.167 15%
282.168 og yfir 0%
3. gr.
Við upphaf gæslunnar skal sótt um niðurgreiðslu á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi í afgreiðslu sveitarfélagsins og hjá dagforeldrum í Hornafirði. Einstæðir foreldrar skulu skila inn vottorði um hjúskaparstöður þeirra og námsmenn skulu skila inn vottorði um skólavist. Fræðslu-og félagssvið áskilur sér rétt að fylgjast með framvindu og ástundun náms.
4. gr.
Umsókn um niðurgreiðslu skal endurnýjuð 1.september ár hvert eða ef hlé verður á gæslu.
5. gr.
Ekki eru veittar niðurgreiðslur aftur í tímann, jafnvel þó að umsækjandi hafi átt rétt á þeim en ekki sótt um.
6. gr.
Daggæsla er niðurgreidd 11 mánuði á ári en ekki er greitt niður með börnum af leikskólum sem dvelja í daggæslu yfir sumartímann.
7. gr.
Við 9 mánaða aldur barns ber foreldrum að skila inn umsókn um leikskólavistun og skila staðfestingu þess efnis til Fræðslu-og félagssviðs. Liggi umsókn ekki fyrir falla greiðslur niður við 12 mánaða aldur barns.
8. gr.
Bjóðist foreldri/foreldrum barns sem hefur náð 12 mánaða aldri heils dags vistun á leikskóla fyrir barnið ber þeim að taka plássið, að öðrum kosti falla niðurgreiðslur niður. Foreldrar með börn í hálfu plássi hjá dagforeldri geta afþakkað heils dags vistun á leikskóla ef leikskólinn býður upp á sambærilegan vistunartíma.
9. gr.
Systkinauppbót er greidd ef foreldrar hafa einnig barn eða börn á leikskóla, einungis er greidd uppbót með einu barni á leikskóla. Upphæð uppbótarinnar nemur þremur mánaðarklukkustundum þess niðurgreiðsluflokks sem foreldri tilheyrir.
10. gr.
Niðurgreitt er með eftirfarandi hætti fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 6 ára, þó eigi lengur en fram að þeim tíma er barn hefur grunnskólagöngu.
a. Fyrir börn sem vegna fötlunar sinnar þurfa sérstaka umönnun og taka því meira en eitt pláss í daggæslu er niðurgreitt samkvæmt reglum þessum, ásamt því að greitt er fyrir það pláss sem ekki nýtist. Ákvörðun um tímalengd sem greidd er vegna sérstakrar ummönnunar er í höndum starfsmanna Fræðslu-og félagssviðs.
b. Dagforeldrar fá niðurgreitt með eigin börnum samkvæmt reglum þessum, að hámarki 8 tíma daglega, virka daga. Niðurgreiðslu skal miða við dvalartíma annarra barna í daggæslunni.
c. Heimilt er að greiða niður daggæslu barna í 1. -3. bekk grunnskóla, í heimahúsi ef um er að ræða börn einstæðra foreldra eða fjölskyldur í félagslegum erfiðleikum. Foreldrum ber þó fyrst að kanna möguleikann á lengdri viðveru grunnskólanna.
11. gr.
Greiðslur eru inntar af hendi 1. virka dag mánaðar og berast greiðslur til foreldra eftir að þjónustumánuði lýkur.
12. gr.
Félagsmálaráð auglýsir að lágmarki árlega rétt foreldra til niðurgreiðslna daggæslu hjá dagforeldri. Dagforeldri upplýsir foreldra einnig um réttinn.
13. gr.
Félagsmálaráð getur samþykkt frávik frá þessum reglum þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi og fyrir liggur faglegt mat félagssviðs.
14. gr.
Ákvörðunum starfsmanna félagssviðs er hægt að skjóta til félagsmálaráðs.
Samþykkt á fundi félagsmálaráðs 22.1.2013
Samþykkt á fundi bæjarráðs 28.1.2013


