29.8.2018 : Meindýraveiðar

Sveitarfélagið minnir veiðimenn á að frestur til að skila inn veiðiskýrslum er 10. september 2018.

22.8.2018 : Leikskólinn Sjónarhóll opnaður

Síðustu viku var starfsfólk leikskólans Sjónarhóls önnum kafið við að taka upp úr kössum, stilla upp húsgögnum og koma öllu fyrir ásamt því að skipuleggja starfsemi skólans og undirbúa komu nemenda sinna.

21.8.2018 : Bæjarstjórnarfundur

253. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar verður haldinn í ráðhúsi.

17.8.2018 : Elísa Sóley ráðin félagsmálastjóri

Í vor var auglýsti Sveitarfélagið Hornafjörður eftir umsóknum í starf félagsmálastjóra. Eftir ráðningaferlið var það niðurstaða bæjarráðs að  Elísa Sóley Magnúsdóttir yrði fyrir valinu. 

15.8.2018 : Kynningarfundur vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði síðastliðið vor þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.

15.8.2018 : Myndfánar

Þessa dagana stendur yfir listviðburður í Öræfum og Suðursveit listamaðurinn Halldór Ásgeirsson setur upp myndfána á valda staði og lætur þá blakta við hún.

Ákveðið samtal er haft í huga með þessari uppsetningu og þeirri sem verður sitthvorn daginn neðan við brúnna við Jökulsárlón. Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi kom á sínum tíma vegasambandi á milli Öræfa og Suðursveitar eins og Skeiðarárbrú gerði síðar þegar allt héraðið tengdist hringveginum og þar með öllu landinu.

10.8.2018 : Regnbogagangbraut á Höfn

Í tilefni Hinsegindaga sem standa yfir um helgina var máluð Regnbogagangbraut við miðbæ Hafnar.

9.8.2018 : Regnbogastígur

Á föstudaginn kl. 12:00 munu fulltrúar frá bæjarstjórn og fulltrúar hinsegin fólks á Höfn mála regnbogastíg á milli Nýheima og Nettó! Mætum og fögnum fjölbreytileikanum saman!