Bæjarstjórn lýsir yfir áhyggjum vegna ástands umferðarmála í Öræfum

19.6.2019

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar lýsir yfir áhyggjum vegna ástands umferðarmála í Öræfum og bókaði eftirfarandi á fundi sínum 13. júní.

" Bæjarstjórn lýsir áhyggjum yfir ástandi í umferðarmálum í Öræfum. Slysatíðni hefur verið að aukast samhliða aukinni umferð og undanfarin ár hefur banaslysum þar fjölgað. Langt er í viðbragðaðila í Öræfum og er mikið álag á björgunarsveitina Kára og slökkvilið í Öræfum sem er byggt upp af sömu einstaklingum. Gestir í Skaftafell og Jökulsárlón voru um 800 og 850 þúsund á síðasta ári eða að meðaltali rúmlega 2000 gestir á dag. Meðalfjöldi bifreiða á síðasta ári við Lómagnúp var 1.344 á dag. Vegakerfið var ekki hannað fyrir þessa miklu umferð. Bæjastjórn óskar eftir samtali við samgönguyfirvöld um málið og að unnið verði að áætlun um breikkun vega, frekari fækkun einbreiðra brúa með það að markmiði að efla umferðaröryggi."