Hvenær skal sækja um byggingarleyfi?

15.5.2018

Sækja þarf um byggingarleyfi áður en byrjað að grafa grunn að mannvirki, breyta því, rífa eða flytja það, breyta burðakerfi þess eða lagnakerfum eða breyta notkun þess, útliti eða formi.

Byggingafulltrúi sveitarfélagsins sér um að annast útgáfu byggingarleyfa fyrir mannvirki sem staðsett eru í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingareglugerðar nr. 112/2012 þarf að byrja á að hafa samband við byggingafulltrúa þegar teikningar af húsum eða önnur áform eru tilbúin. Byggingarfulltrúi metur hvort teikningar eru lögmætar og réttar.

Hvernig skal sækja um byggingarleyfi?

Hægt er að sækja um byggingarleyfi í gegnum Íbúagátt : http://ibuagatt.hornafjordur.is.

Umsókninni skal fylgja:

  • Aðaluppdrættir ásamt byggingarlýsingu á pappír eða á rafrænu formi.

  • Tilkynning um hönnunarstjóra.

  • Samþykki meðeiganda (ef þörf er).

Nánari upplýsingar gefur Bartosz Skrzypkowski byggingafulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sími 470 800 netfang bartoz@hornafjordur.is.