Myndfánar

15.8.2018

Þessa dagana stendur yfir listviðburður í Öræfum og Suðursveit listamaðurinn Halldór Ásgeirsson setur upp myndfána á valda staði og lætur þá blakta við hún.

Ákveðið samtal er haft í huga með þessari uppsetningu og þeirri sem verður sitthvorn daginn neðan við brúnna við Jökulsárlón. Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi kom á sínum tíma vegasambandi á milli Öræfa og Suðursveitar eins og Skeiðarárbrú gerði síðar þegar allt héraðið tengdist hringveginum og þar með öllu landinu.

DAGSKRÁ FYRIR UPPSETNINGU Á 30 MYNDFÁNUM FRÁ 12. TIL 23. ÁGÚST 2018.

 „ Ferð til eldjöklanna „ 1.áfangi.

Sunnudagur 12. ágúst, Skeiðarárbrú uppsetning A.

Mánudagur 13. ágúst, Skeiðarárbrú uppsetning B.

Miðvikudagur 15. ágúst, Sandfell í Öræfum.

Sunnudagur 19. ágúst, Jökulsárlón vestanmegin í varnargarði fyrir neðan brú.

Mánudagur 20. ágúst, Jökulsárlón austanmegin í varnargarði fyrir neðan brú.

Miðvikudagur 22. ágúst til 23. ágúst, Sléttaleiti í Suðursveit.

Fánarnir verða settir upp árla dags og teknir niður að kveldi nema í Sléttaleiti þar sem fánaborgin mun blakta yfir nóttina.