Samanburður á úrslitum skuggakosninga ungmenna og sveitarstjórnarkosninga

28.5.2018

Skuggakosning fór fram samhliða sveitarstjórnarkosningum í Sveitarfélaginu Hornafirði, kosið var í öllum kjördeildum í sveitarfélaginu. Ungmennaráð sveitarfélagsins stóð fyrir kosningunni líkt og í síðustu forsetakosningum.

Ágæt kosningaþátttaka var meðal unga fólksins eða 53,42% og virðist sem þau kjósi frekar á kjörstað samhliða foreldrum sínum miðað við þátttöku í skuggakosningum framhaldskólanna sem haldnar voru í framhaldsskólum landsins en þar var meðaltals kjörsókn 35,28%.  146 voru á kjörskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði á aldrinum 13-17 ára. 

Samanburður á skuggakosningum og almennu kosningum til sveitarstjórna.

Flokkur Atkv. Skugga. Fulltrúar Atkv. almennra kosninga % Fulltrúar
B – listi Framsóknarmanna 49,33% 4 643 55,7 4
D – listi Sjálfstæðismanna 33,33% 2 343 29,7 2
E – listi 3 Framboðsins 17,33% 1 169 14,6

Bæjarfulltrúar ungmennaráðs  Bæjarfulltrúar skv. úrslitum kosninga
   
1.  Ásgerður K. Gylfadóttir B                             1. Ásgerður K. Gylfadóttir B
   
2. Björn Ingi Jónsson D                                        2. Björn Ingi Jónsson D
   
3. Ásgrímur Ingólfsson B                                     3. Ásgrímur Ingólfsson B
   
4. Erla Þórhallsdóttir B                               4. Erla Þórhallsdóttir B
   
5. Guðbjörg Lára Sigurðardóttir D                   5. Guðbjörg Lára Sigurðardóttir D
   
6.  Sæmundur Helgason E                               6. Sæmundur Helgason E
   
7. Björgvin Óskar Sigurjónsson B                     7. Björgvin Óskar Sigurjónsson B

Kosningaþátttaka í Sveitarstjórnarkosningunum var 78,6% og var um það rætt á kjörstöðum hve margir af ungu kynslóðinni komu til að kjósa sem höfðu aldur til. Talið er að það tengdist því að yngra fólkið tók þátt í skuggakosningum samhliða Forsetakosningum árið 2016. Það sýnir að það er líklegt að þátttaka í skuggakosningum getur leitt til frekari kjörsóknar. Við höldum okkur bara við þá útskýringu í bili að minnsta kosti.

Ekki er mikill munur á niðurstöðum skuggakosninganna og sveitarstjórnarkosninganna en þó einhver prósentulega séð. Sama forrit var notað til útreikninga til að fá sömu niðurstöður sbr. röðun fulltrúa eftir atkvæðum ofl.