Styrkumsóknir fyrir árið 2019

19.11.2018

Þau félög og félagasamtök sem vilja senda inn erindi eða styrkumsókn hjá menningarmálanefnd, fræðslunefnd og bæjarráði í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 þurfa að skila umsóknum fyrir 7. desember.

Styrkumsókn þarf að fylgja greinargerð eða ársreikningar/uppgjör fyrir síðasta fjárhagsár, og upplýsingar um fyrirhugaða nýtingu styrksins og starfsemi styrkumsækjanda á liðnu ári, annars verður umsókninni hafnað. 

Styrkumsóknir eru aðgengilegar á íbúagátt sveitarfélagsins  http://ibuagatt.hornafjordur.is, þar er hægt að fylla út eyðublöð og hlaða inn viðhengjum með umsókn, einnig er hægt að senda umsókn til afgreiðslu sveitarfélagsins á afgreidsla@hornafjordur.is

Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri