Umhverfisviðurkenning 2017

31.7.2017

Umhverfisnefndi auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenningar 2017. 

Umhverfisnefnd auglýsir eftir tilnefningum, einstaklingi (um), félagasamstökum, stofnun, fyrirtæki og lögbýlum til sveita, sem hefur með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúru og umhverfi að eðlilegum þætti í störfum sínum og rekstri eða hefur á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar náttúru og umhverfis.

Frestur til að tilnefna er til 14. ágúst, tilnefningum skal skila á skrifstofu Ráðhússins Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði eða á netfangið bryndis@hornafjordur.is

Bryndís Bjarnarson

Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi