Sundlaug Hafnar
Ný og glæsileg útisundlaug var tekin í notkun í apríl 2009. Þar er að finna góða 25 x 8,5 m. sundlaug, vaðlaug fyrir börnin, tvo heita potta (annar þeirra er nuddpottur), gufubað og þrjár mismunandi rennibrautir.
Sundlaugin er í klasa íþróttamannvirkja á Höfn, og í næsta nágrenni við tjaldstæðið og aðra almenna þjónustu.
Kjörorð sundlaugarinnar er:
Sund, vatn og vellíðan
Opnunartími frá 1. október 2011 til 25.maí 2012:
Virka daga 06:45 til 21:00
Helgar 10:00 til 17:00
Opnunartími frá 25.maí 2012 til 1.október 2012:
Virka daga 06:45 til 21:00
Helgar 10:00 til 19:00
Opnunartímar um jól og áramót 2011/2012
Þorláksmessa 23.des opið frá kl. 06:45 – 13:00.
Lokað er eftirtalda daga:
Aðfangadag 24. desember , jóladag 25. desember, annan í jólum 26. desember, gamlársdag 31. desember og nýársdag 1. janúar 2012.
Opnanir milli jóla og nýárs:
Þriðjudag 27. des. Opið frá kl. 06:45 – 21:00.
Miðvikudag 28. des. Opið frá kl. 06:45 -21:00.
Fimmtudag 29. des. Opið frá kl. 06:45 – 21:00.
Föstudag 30. des. Opið frá kl. 06:45 – 21:00.
Gleðileg jól og farsælt nýtt sundár! Starfsfólk Sundlaugar Hafnar
Sími: 470-8477 - Netfang: sundlaug@hornafjordur.is
Íþróttahúsið Höfn
Íþróttahúsið Höfn er með íþróttasal sem er um 600 m2. Íþróttahúsið er sambyggt Grunnskóla Hornafjarðar (Heppuskóla). Íþróttakennsla grunnskólans fer þar fram. Einnig hefur Ungmennafélagið Sindri afnot af húsinu utan skólatíma fyrir sitt íþróttastarf.
Auk hefðbundinnar íþróttastarfsemi gegnir íþróttahúsið mikilvægu hlutverki sem fjölnotahús, þar eru haldnir tónleikar, ráðstefnur og aðrar stórar samkomur.
Sími: 470-8470 - Netfang: ith@hornafjordur.is
Félagsheimili / Íþróttahús Mánagarður
Íþróttahúsið í Mánagarði í Nesjum (7 km vestan við Höfn). Íþróttasalurinn sjálfur er um 300 m2 og lagður parketi. Ungmennafélagið Máni í Nesjum og Sindri á Höfn nýta húsið fyrir íþróttaæfingar og dans. Í íþróttasalnum eru haldnar stærri samkomur s.s. þorrablót, landsfundir og ráðstefnur. Íþróttahúsið er sambyggt félagsheimilinu Mánagarði sem byggt var 1952 og er hægt að nýta sal félagsheimilisins með íþróttsalnum. Í Mánagarði eru sviðslistir til húsa ásamt því að ýmsar minni samkomur eru haldnar þar. Hægt er að fá Mánagarð leigðan fyrir stærri samkomur s.s. ættarmót, ef sótt er um með góðum fyrirvara.
Sími: 478-1462, 470-8000
Sindravellir á Höfn

Sindravellir eru íþróttasvæði við hlið íþróttahússins á Höfn. Á Sindravöllum er góður og vel búinn knattspyrnu- og frjálsíþróttavöllur. Þar er einnig æfingasvæði fyrir knattspyrnu. Tartan er á hlaupa- og stökkbrautum. Sindravellir voru endurbyggðir fyrir unglingalandsmótið 2007 sem haldið var á Hornafirði.
Sími: 470-8470 - Netfang: ith@hornafjordur.is
Mánavöllur í Nesjum
Mánavöllur stendur við Mánagarð. Þar er góður knattspyrnuvöllur og frjálsíþróttaaðstaða með malarhlaupabrautum.
Sími: 478-1462, 470-8000
Sparkvöllur KSÍ við íþróttahús á Höfn

|