Ný Sundlaug við Heppuskóla
Verk hafið 1.1.2007 | Verklok 9.4.2009
Ný sundlaug við Heppuskóla verður 25 m. að lengd. Laugin verður búin tveim steinsteyptum pottum, vaðlaug með þremur leiktækjum fyrir yngri kynslóðina og þrem stórum rennibrautum. Sundlaugin er staðsett í hjarta bæjarins og mun vonandi koma íbúum og gestum sveitarfélagsins til góðra nota í nákominni framtíð.
Helstu verktakar við nýju sundlaugina eru Mikael ehf. Rósaberg ehf. Króm og Hvítt ehf. Málningarþjónusta Hornafjarðar ehf. Rafhorn ehf. Allir helstu verktakar eru búsettir á Hornafirði. Verkfræðiþjónustan ehf. fer með eftirlit verksins. Byggingarstjóri er Birgir Árnason. Ábyrgðaraðili verksins gagnvart sveitarfélaginu er Haukur Ingi Einarsson framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar .
Gert er ráð fyrir að sundlaugin verði opnuð 9. apríl 2009 og öllum gefin kostur á að fara í sund sér að kostnaðarlausu.
HIE


