Hreinsun myndun og kortlagning á fráveitukerfi Hafnar
Bólholt er að hreinsa/mynda og kortleggja fráveitukerfi Hafnar. Upplýsingarnar verða nýttar sem viðhaldsáætlun fráveitunnar í framtíðinni.
Fyrirtækið Bólholt er að hreinsa/mynda og kortleggja fráveitukerfi Hafnar um þessar mundir. Allar lagnir eru hreinsaðar, myndaðar og færðar inn á gagnagrunn sveitarfélagsins, allir brunnar og heimæðar verða einnig staðsettar í kerfið. Gögnin eru svo skráð á stafrænt form sem verður svo nýtt sem viðhaldsáætlun fráveitukerfisins. Fráveitukerfið á Höfn er mis gamalt og lítið vitað um ástand þess. Þetta eru því mikilvægar upplýsingar fyrir framtíðar viðhald kerfisins.
HIE


