Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

04.07.2003 - 05.07.2003, kl.13:00 - 21:00 Menning

Málverkasýningin Lífið

Hjördís Árnadóttir er fædd í Reykjavík 28. desember 1952. Á fyrsta aldursári flutti hún til Reykjanesbæjar og hefur verið búsett þar síðan. Hjördís hefur lengi haft áhuga á listum og var m.a. í stjórn Leikfélags Keflavíkur í mörg ár en síðustu 7 árin hefur hún nánast alveg helgað myndlistinni frístundatíma sinn. Hjördís starfaði með Baðstofunni, áhugahópi um myndlist, í mörg ár og var formaður hennar í tvö ár. Hjördís er nú formaður Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ og hefur gegnt formennsku þar frá 2001. Hjördís hefur sótt fjölda námskeiða og m.a. notið handleiðslu eftirtalinna myndlistarmanna: Eiríks Smith, Jóns Gunnarssonar, Margrétar Jónsdóttur, Jóns Ágústs Pálmasonar, Reynis Katrínarsonar, Sossu, Kristins Pálmasonar, Eiríks Árna Sigtryggssonar og Ástu Árnadóttur. Hjördís hefur tekið þátt í fjölda samsýninga með Baðstofunni og félögum úr Félagi myndlistarmanna í Reykjanesbæ. Einnig hafa hún og sonur hennar Rúnar Jóhannesson haldið samsýningu í Frumleikhúsinu í Keflavík. Á málverkasýningunni "Lífið" eru málverk eftir Hjördísi Árnadóttur. Sýningin er opin Humarhátíðarhelgina frá kl. 13-21 og er í Gamla bókasafninu við Hafnarbraut

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica