Viðburðir

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

Hera

10.11.2003, kl. 20:30 Tónleikar Órafmögnuð vegavinna

Tónleikar í Nýheimum

Mánudaginn 10. nóvember verða tónleikar í Nýheimum þar sem fram munu koma hljómsveitin Santiago, Hera og Geiri Harðar ásamt hornfirðingunum Védísi Ernu Eyjólfsdóttir og hljómsveitinni Parket. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er aðgangseyrir kr. 1.000.- Tónleikarnir ganga undir nafninu “Órafmögnuð vegavinn” og eru á vegum European Roadworks Music sem eru Evrópusamtök sem vinna að því að efla kynningu á ungum söngvurum og lagahöfundum. Hera, Santiago og Geir Harðar voru valin úr hópi umsækjanda á Íslandi til að taka þátt í verkefninu og munu þau ferðast saman um Ísland 6. - 12. nóvember. Samstarfsaðilar á Höfn eru Menningarmiðstöð Hornafjarðar og nemendafélag FAS. Lesa meira
 

10.11.2003 - 16.11.2003 Afþreying Í ljósaskiptunum – Hafið og Norðrið

Norræn bókasafnsvika 10. – 16. nóvember

Dagskrá vikunnar hefst á sama tíma í bókasöfnum á Norðurlöndunum með upplestri á sama texta. Í ljósaskiptunum, kl. 18:00, verða ljósin slökkt og á Höfn mun Elín Magnúsdóttir, forseti bæjarstjórnar, lesa upp við kertaljós líkt og á öðrum bókasöfnum. Textinn er úr inngangi bókarinnar Garman og Worse eftir norska rithöfundinn Alexander Kielland. Þemað í ár er Hafið og norðrið. Hafið bindur Norðurlöndin og í gegnum tíðina hefur það verið okkar mikilvægasta samgönguleið og lífsbjörg en líka ástæða ófriðar og átaka. Einnig er sótt til hafs í frístundum í leit að endurnæringu. Í Menningarmiðstöð Hornafjarðar ljúkum við bókasfnsvikunni með upplestri setts bæjarstjóra, Ingu Jónu Halldórsdóttur, yfir fiskisúpu í hádeginu á föstudeginum 14. nóvember. Við vonum að gestir okkar eigi eftir að njóta samverunnar og hafa gaman af. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica