Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

30.12.2003, kl.17:00 Vallanes

JÓLABALL Meysalinga og Lukkuhnoðra á höfuðborgarsvæðinu

Vallanesættin

Fyrsta JÓLABALL Meysalinga og Lukkuhnoðra á höfuðborgarsvæðinu verður haldið þriðjudaginn 30.desember kl.17.00 í Kirkjuhvoli, Safnaðarheimili Vídalínskirkju, Garðabæ. Þetta verður ekta jólaball þar sem jólasveinar kíkja í heimsókn, dansað verður í kringum jólatréð við undirleik "live-bands" og einhverjir hæfileikaríkir mæta með heimatilbúin skemmtiatriði. Hver fjölskylda er beðin að mæta með léttar veitingar - já mjög léttar og drykkjarföng. Það verður sem sagt slegið upp hlaðborði en kaffi verður á könnunni. Kostnaður við leigu á húsnæðinu er mjög lítill en ef flestir mæta gæti það orðið 300-500 kr. á fjölskyldu. Þarna er tilefni til að hitta ættingjana og jafnvel þá sem eru í stutt jólafrí á Íslandi. Einnig er gaman að leyfa litlu lukku-barnabarnabörnunum að hittast og að fá tækifæri að sjá þessi minnstu í ættinni. Ef allir mæta verðum við tæplega 60 manns (með ungabörnum) svo það er velkomið að bjóða með öðrum ættingum ykkar eða vinum enda húsið stórt og rúmgott. Vinsamlegast látið okkur vita sem fyrst, hvort þið mætið eða ekki svo við getum áttað okkur á fjöldanum. Látið alla Meysa vita sem ekki eru nettengdir. Takið daginn frá og gleðjumst í góðra Meysa-hópi. Við sendum svo nánari upplýsingar þegar nær dregur. Bestu kveðjur Ingibjörg og Andri

Umsjónaraðili

Vallanesættin

 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica