Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

Píanósnillingurinn Liene Circene
09.09.2004, kl.20:00 Tónleikar

Píanótónleikar í Nýheimum

Liene Circene

Næstkomandi fimmtudag mun hinn frábæri lettneski píanóleikari, Liene Circene halda tónleika í Nýheimum. Á efnisskrá tónleikanna eru m.a. verk eftir Beethoven og Rachmaninov. Liene lék í fyrsta sinn á Íslandi fyrir u.þ.b. ári síðan og vakti verðskuldaða athygli fyrir fágaðan leik, leiftrandi flutning og frábæra túlkun og tækni. Í gagnrýni dagblaðanna mátti þá meðal annars lesa þetta: "Liene ræður yfir frábærri tækni er skyggði aldrei á tónlistina sem flaut syngjandi úr flyglinum fram í sal til áheyrenda." "Þetta voru hreint frábærir tónleikar á heimsmælikvarða sem boðið var upp á í Salnum þetta kvöld". Mbl. 26.10.03 "Einkennandi fyrir spilamennskuna var gríðarleg styrkleikabreidd, mun meiri en maður á að venjast, allt frá fínlegustu blæbrigðum upp í svo voldugan og kraftmikinn hljóm að maður varð gersamlega dáleiddur." "Hún er einhver besti píanóleikari sem hér hefur komið fram." DV 21.10.03. Tónleikarnir byrja kl.20:00 og er aðgangseyrir kr.1500.-

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica