Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

12.09.2004, kl.20:00 Bíó

King Arthur

Antoine Fuqua sem gerði m.a. hina kröftugu “Training Day” kemur núna með stórmyndina, King Arthur sem fjallar um þjóðsagnapersónuna, Artúr Konung sem lét að sér kveða þegar Rómaveldið var að gliðna í sundur. Við lofum æsilegri hasarmynd þar sem barist verður til síðasta manns. Hér er á ferðinni blóðug riddaramynd og hefur fólk líkt þessari við myndir á borð við “Braveheart” og “Gladiator” sem er ekki slæm samlíking. Ofurframleiðandinn Jerry Bruckheimer hefur aldrei klikkað þegar hann framleiðir stórmyndir sínar og má bara benda á myndirnar Pirates of the Caribbean, Armageddon, Bad Boys myndirnar, The Rock og Con Air til marks um það. Í King Arthur leika þau Clive Owen, Keira Knightley, Steallan Skarsgard, Stephen Dillane, Ray Winstone og Til Schweiger. Clive Owen fer með hlutverk Artúrs konungs sem þyrstir í frið og vill hann yfirgefa Bretland og halda til Rómar en hann sleppur ekki svo auðveldlega frá skyldustörfum sínum því breska þjóðin biður hann um að sameina hana í baráttunni gegn Söxum sem herja á Bretland. Artúr konungur fær liðsveislu með sér en seiðkarlinn Merlin, yndismærin Guinevere (Keira Knightey), Lancelot, Galahad, Bors og Tristan veita honum liðsstyrk gegn óvinunum.

Umsjónaraðili

Sindrabær
Hafnarbraut
780  Höfn

 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica