Viðburðir þann

19.02.2005, kl.10:00 - 16:20 Málþing

Skólamálaþing í Nýheimum

Á þinginu verður flest það sem snýr að uppeldis- og skólamálum til umfjöllunar. Að þinginu koma starfsmenn leikskólanna, grunnskólanna, tólistarskólans og framhaldsskólans auk annarra sem koma að skólamálum. Fyrir hádegi verða fluttir fyrirlestrar í fjórum málstofum sem skiptast eftir skólastigum, sbr. að framan. Hver skóli mun þar gera grein fyrir stöðu sinni og framtíðarsýn. Að framsögum loknum verða umræður með þátttöku þeirra sem mæta í hverja málstofu. Eftir hádegishlé verða fyrirlestrar og umræður á sal. Þar koma meðal annarra fram gestafyrirlesarar sem eru sérfræðingar í málefnum leikskóla og grunnskóla og halda erindi um þessi skólastig. Þá verður rætt um hinn þrískipta skóla, reynslu annarra af sameiningu skóla og ákvarðanatöku í skólamálum. Öllum sem mæta er frjálst að taka þátt í umræðum að framsögum loknum. Það er mikilvægt þegar þing sem þetta er haldið að mæting á það verði góð. Hér gefst öllum þeim sem áhuga hafa á skólamálum kjörið tækifæri til hlusta á það sem skólafólk og foreldrar hafa um málefni skólanna að segja og taka þátt í skoðanaskiptum um þennan mikilvæga málaflokk. Því hvetjum við sem flesta til að taka frá tímann frá klukkan 10:00 til 16:20 laugardaginn 19. febrúar, mæta í Nýheima og láta rödd sína heyrast.

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

Viðburðir

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica