Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
24.02.2005, kl.20:00 - 22:00 Málþing

Atvinnulíf á norðurslóðum

Málþing í Nýheimum á Höfn um atvinnumál á norðurslóðum. Fjallað verður um hvernig jaðarbyggðum í Færeyjum, Íslandi og Noregi hefur tekist að laga sig að breyttum atvinnuháttum. Efnið er áhugavert því gerður er samanburður á reynslu samfélaga víðsvegar á norðurslóðum. Þess vegna er fróðlegt að vita hvort þau vandamál sem Hornfirðingar glíma við séu einkennandi fyrir aðrar norðlægar byggðir eða einsdæmi.

Á málþinginu mun Unnur Dís Skaptadóttir, dósent við Háskóla Íslands, gera grein fyrir helstu niðurstöðum samnorrænnar rannsóknar um efnið sem birtar voru í bókinni Innovations in the Nordic Periphery. Rannsóknin snertir Hornfirðinga beint enda eru tekin dæmi í bókinni um tilraunir þeirra til að bregðast við breytingum í atvinnulífi, m.a. með uppbyggingu Nýheima og Frumkvöðlaseturs. Á haustdögum 2004 var haldið málþing á eyjunni Röst í Norður-Noregi. Þangað fóru þrír fulltrúar frá Hornafirði, Ari Þ. Þorsteinsson, Gísli Sverrir Árnason og Sigurður Mar Halldórsson. Á málþinginu mun Ari Þ. Þorsteinsson fjalla um leiðir til nýsköpunar í atvinnulíf i . Þá mun Sigurður Mar fjalla um hvort reynsla h a ns af frumkvöðlastarfi sé á einhvern hátt sambærileg við það sem gerist í álíka stórum samfélögum í Noregi og Færeyjum . Að lokum gerir Unnur Dís grein fyrir rannsóknarniðurstöðunum. Rúmur tími mun verða fyrir umræður í lokin.

Gísli Sverrir Árnason verður fundarstjóri.

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica