Viðburðir

Tvær sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar

Miðvikudaginn 27. mars opna tvær sýningar í Listasafni. Í fremra rýminu opnar sýning Guðrúnar Ingólfsdóttur, Lífsdans.

Lesa meira
 

Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.

Lesa meira
 

Viðburðir þann

Páll Þór Imsland
06.07.2005, kl.20:30 Fundur

Hve gamall er Hornafjörður?

Páll Imsland jarðfræðingur heldur erindi á vegum jöklasýningarinnar: Hve gamall er Hornafjörður? Erindið verður haldið í ráðstefnusal Nýheima miðvikudaginn 6. júlí og hefst klukkan 20:30. Hornafjörður er yngri en hingað til hefur yfirleitt verið talið. Í erindinu er fjallað um ísaldarlok á Íslandi með sérstakri áherslu á Suðausturland, þar sem aðstæður voru öðruvísi en annars staðar á landinu. Dregin verður upp mynd af þessum öðruvísi aðstæðum og afleiðingum þeirra á svæðinu sem meðal annars setja aldri Fjaranna og strandlónanna, sem mynda Hornafjörð og önnur sambærileg fyrirbæri á Suðausturlandi, aldurstakmörk. Að erindinu loknu gefst áheyrendum kostur á að spyrja fyrirlesara frekar út í þessi mál og aðra náttúru Suðausturlands.

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica